Erlent

Bílstjórinn einnig látinn

Árásin átti sér stað fyrir utan QuickTrip verslun í bænum Tulsa í Bandaríkjunum.
Árásin átti sér stað fyrir utan QuickTrip verslun í bænum Tulsa í Bandaríkjunum. mynd/stöð 2
John White, þrjátíu og sjö ára gamall Bandaríkjamaður, sem særðist lífshættulega í skotárásinni í Tulsa um helgina, er látinn.

White var bílstjóri bifreiðarinnar sem Kristján Hinrik Þórsson, átján ára, var farþegi í þegar vegfarandi hóf skotárás á þá.

Dave Walker, varðstjóri morðdeildarinnar í Tulsa í Bandaríkjunum, staðfesti þetta við fréttastofu í kvöld. Rannsókn lögreglu á morðinu er enn á frumstigi og er morðinginn ófundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×