Mikil flóð á Spáni 29. september 2012 13:57
Átta létu lífið, þar af tvö börn, í miklum flóðum í suðurhluta Spánar í gær. Sex hundruð, hið minnsta, hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Óvenjumikil úrkoma mældist á svæðinu í gær eftir nokkurra mánaða þurrka, en héröðin Malaga, Murcia og Almeria í suð-austurhluta landsins hafa orðið einna verst úti. Á meðal látinna eru tvö börn, stúlka og drengur, sem drukknuðu í bænum Puerto Lumbreras þegar vatn flæddi inn í bíl sem þau voru farþegar í. Þrjú lík fundust í nótt, þar á meðal af miðaldra konu í bænum Lorca. Þá er tveggja saknað í Almería, karlmanns og breskrar konu á sextugsaldri. Hvirfilbylur fór um bæinn Gandia í gær og slösuðust þrjátíu og fimm þegar parísarhjól féll á hliðina, þar af eru fimmtán taldir alvarlega slasaðir. Víða hefur flætt inn í hús og hefur vatnsflaumur hrifið með sér bíla og eyðilagt vegi. Áttahundruð manns vinna nú við björgunarstörf í Malaga, sem er vinsæll ferðamannastaður, en þar hafa samgöngur í bæði lofti og á landi farið úr skorðum. Þá hafa lestarsamgöngur milli höfuðborgarinnar og Valencía legið niðri. Enn rignir en úrkoman stefnir nú í átt að Katalóníuhéraði og eyjunum Mallorca, Menorca, Ibiza og Formentera, sem margir Íslendingar sækja heim ár hvert, samkvæmt veðurspá.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira