Erlent

Sænskir skurðlæknar græddu leg í tvær konur

Sænskir skurðlæknar brutu blað í sögu læknisfræðinnar á dögunum þegar leg voru grædd í tvær konur.

Líffæragjafarnir voru mæður kvennanna og gætu þær því átt möguleika á að ganga með börn í sama legi og gengið var með þær í.

Tíu skurðlæknar komu að aðgerðinni en hún fór fram á háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg um helgina. Aðgerðin þykir afar metnaðarfull og hafa læknarnir sagt að skurðaðgerðirnar verði ekki taldar árangursríkar nema að konurnar tvær muni ganga með börn á næstu tólf mánuðum.

Fósturvísar voru undirbúnir fyrir aðgerðina. Þeim verður síðan komið fyrir í konunum á næstu mánuðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×