Tekst ekki að reka fleyg í samstarfið 9. október 2012 00:00 Fyrstu skrefin í valdaskiptum í Afganistan verða tekin á fundi varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna í Brussel í dag. fréttablaðið/ap „
Óvinir Afganistans eru að reyna að reka fleyg á milli okkar en þeim mun ekki takast það. Við erum staðráðin í því að láta þeim ekki takast það,“ segir Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, NATO, um nýlegar innherjaárásir á alþjóðlegt herlið og öryggisyfirvöld í Afganistan. Fram kom á blaðamannafundi með háttsettum embættismönnum innan bandalagsins í gær að 53 hermenn hefðu látist í slíkum árásum það sem af er ári. Málefni Afganistans verða í brennidepli á fundi varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna sem fer fram í Brussel í dag og á morgun, en þá munu fulltrúar NATO-ríkjanna og annarra ríkja sem taka þátt í aðgerðunum í Afganistan koma saman. „Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir, ekki síst vegna innherjaárásanna, sem bæði alþjóðaliðið og Afganar hafa orðið fyrir barðinu á. Við þurfum að takast á við þessa ógn í samfélaginu og erum að gera það. Ég er nýbúinn að ræða við Karzai forseta. Við erum sammála um að þetta sé forgangsatriði og að við þurfum að gera allt sem við getum til að sporna við þessum árásum. Öll 50 ríkin sem taka þátt eru áfram skuldbundin verkefninu,“ sagði Rasmussen á fundi með blaðamönnum í Brussel í gær. Rætt verður um framtíð Afganistans, hvernig staðið verður að því að afhenda Afgönum völd í landinu. „Ég geri ráð fyrir því að aðildarríkin og bandamenn okkar sendi skýr skilaboð um að við stöndum við markmiðin, við stöndum við áætlunina og við stöndum við tímamörkin. Markmiðið er að afhenda Afgönum völdin, áætlunin er að þjálfa gott öryggislið og tímamörkin eru 2014,“ sagði Rasmussen. Fyrstu skrefin í endanlegum valdaskiptum verða sögn Rasmussen tekin á fundinum nú og næstu skref verða tekin á fundi ráðherranna í febrúar og um mitt næsta ár verður að mestu búið að skipuleggja brottflutninginn. Rasmussen segir hins vegar of snemmt að segja til um hversu margir hermenn verði eftir í landinu eftir 2014 eða hvaða ríki muni taka þátt í framhaldinu.thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Sjá meira