Segir rannsóknina ómarktæka 5. október 2012 01:00 Niðurstöður sameindalíffræðingsins Gilles-Eric Séralini eru umdeildar. NordicPhotos/AFP
Nýleg frönsk rannsókn, sem bendir til þess að ákveðinn erfðabreyttur maís og illgresiseyðirinn Roundup valdi æxlismyndun, er ekki byggð á nægilega sterkum vísindalegum grunni til þess að ástæða sé til endurskoðunar á Evrópulöggjöf. Þetta kemur fram í frumniðurstöðum Matvælastofnunar Evrópu (EFSA), sem tók málið fyrir að ósk framkvæmdastjórnar ESB, eftir útkomu rannsóknarinnar. EFSA sagði aðferðafræðina á bak við rannsóknina ekki vera í samræmi við vísindaleg vinnubrögð. Hún sé svo gölluð að ekki sé hægt að leggja hana til grundvallar aðgerðum að svo stöddu. Áður en lokagerð úttektarinnar verður gefin út gefst aðstandendum rannsóknarinnar, sameindalíffræðingnum Gilles-Eric Séralini og samstarfsfólki hans, tækifæri til að færa nánari rök fyrir niðurstöðum sínum. Enn sem komið er mun EFSA því ekki leggja til breytingar á öryggismati á umræddri maísafurð og ekki breyta yfirstandandi rannsókn á Roundup-illgresiseyðinum. Rannsóknin varð tilefni mikillar umræðu um erfðabreyttar lífverur í matvælaiðnaði, en vísindamenn um allan heim, þar á meðal á Íslandi, gagnrýndu aðferðafræði Séralinis harðlega. - þj
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira