Ræðast við fyrst í Noregi og síðar á Kúbu 5. september 2012 03:00 Á leið til Kúbu Á vefsíðu FARC-hreyfingarinnar hafa birst myndir af félögum hennar að syngja lofsöngva um væntanlegar viðræður við stjórnina. nordicphotos/AFP
Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, tilkynnti í sjónvarpsávarpi í gær að formlegar friðarviðræður við FARC-skæruliðasamtökin væru að hefjast. Santos hafði skýrt frá því í síðustu viku að bráðabirgðaviðræður hefðu verið í gangi síðustu mánuði. Hann sagði í gær að þær viðræður hefðu farið fram á Kúbu fyrir milligöngu bæði norskra og kúbverskra stjórnvalda. Formlegar viðræður munu hefjast snemma í næsta mánuði í Ósló í Noregi en síðan halda þær áfram á Kúbu. Fjölmiðlar í Kólumbíu hafa haldið því fram að fulltrúar frá Síle og Venesúela muni taka þátt í viðræðunum. Skæruliðahreyfing FARC hefur áratugum saman verið í vopnaðri baráttu gegn stjórnvöldum, ásamt því að stunda mannrán og fíkniefnaviðskipti til að afla sér tekna, en staða samtakanna hefur veikst mjög síðustu árin. Santos sagði að viðræðurnar myndu meðal annars snúast um bætur til fórnarlamba skæruliðanna og landsvæði sem skæruliðarnir hafa lagt undir sig. Einnig verði rætt um aðgerðir til að draga úr fátækt í Kólumbíu og endurbætur í landbúnaði. Þetta er í fjórða sinn á þremur áratugum sem reynt er að semja um frið við FARC. Santos segir að líkurnar á árangri séu nú meiri en áður. Santos hefur verið forseti Kólumbíu í tvö ár. Forveri hans í embætti, Alvaro Uribe, gagnrýndi hann fyrir að vera alltof viljugur til viðræðna við FARC. Síðustu friðarviðræður stóðu yfir í þrjú ár en fóru út um þúfur árið 2002. - gb
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira