Tugir gengu berserksgang á bráðamóttöku 22. ágúst 2012 03:00 Lögregla var kölluð að sjúkrahúsinu í Óðinsvéum í fyrrakvöld þar sem tugir óeirðaseggja brutu allt og brömluðu. Myndin er úr safni. FRéttablaðið/Hari
Tugir manna eiga yfir höfði sér ákæru eftir að þeir réðust inn á bráðamóttökuna á sjúkrahúsinu í Óðinsvéum seint í fyrrakvöld og brutu þar allt og brömluðu. Upptök málsins eru rakin til átaka milli gengja í borginni, en fyrr um kvöldið hafði 26 ára gamall maður verið fluttur á sjúkrahúsið með skotsár og stungusár. Árásarmennirnir létu ekki þar við sitja heldur fjölmenntu upp að sjúkrahúsinu og heimtuðu að fá að hitta hinn særða. Talið er að á bilinu sextíu til áttatíu manns hafi mætt með barefli, kylfur og hnúajárn. Þeir ógnuðu starfsfólki, rifu myndir niður af veggjum og brutu blómapotta áður en lögregla náði að reka þá út úr húsinu. Þar skemmdu þeir sjúkrabíl og lögreglubíl áður en yfir lauk. Lögreglustjórinn í Óðinsvéum sagðist í samtali við danska miðla vænta þess að menn yrðu handteknir vegna málsins á næstu dögum. Sakarefni væru meðal annars óspektir, brot gegn valdstjórninni, ólöglegur vopnaburður og skemmdarverk. Jane Kragelund, forstjóri sjúkrahússins, sagði í samtali við TV2 að hún þekkti engin dæmi um viðlíka árás á sjúkrahús í Danmörku. „Hingað til höfum við ekki verið með öryggisvakt á bráðamóttökunni en nú verðum við að sjálfsögðu að meta hvort þörf sé fyrir slíkt,“ sagði hún. Í fréttatilkynningu frá sjúkrahúsinu segir að bráðamóttakan hafi verið lokuð í tvo klukkutíma og opnuð klukkan þrjú. Starfsfólk og sjúklingar munu fá áfallahjálp í framhaldinu. - þj
Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Lögregla eltist við afbrotamenn Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Sjá meira