Erlent

Vaxandi harka í deilu um eyjar

Japanar kalla þær Takeshima en Kóreumenn Dokdo.
Japanar kalla þær Takeshima en Kóreumenn Dokdo. fréttablaðið/AP
Enn á ný deila Japanar og Suður-Kóreumenn hart um yfirráð nokkurra lítilla eyja í hafinu á milli þeirra. Spenna milli ríkjanna hefur vaxið eftir að Lee Myung-bak, forsætisráðherra Suður-Kóreu, sigldi í síðustu viku til eyjanna, sem nefnast Takeshima á japönsku en Dokdo á kóresku.

Japanskir þingmenn og ráðherrar hafa nú svarað með því að heimsækja Yakasuni-hofið, sem reist var til minningar um Japana sem féllu í stríðinu, þar á meðal menn sem frömdu stríðsglæpi gegn Kóreu.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×