Ræddu útgáfu evruskuldabréfa í Brussel 24. maí 2012 03:30 Francois Hollande
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hittust á fundi í Brussel í gærkvöldi og ræddu fjárhagsvandræði svæðisins. Meðal annars var rætt um mögulega útgáfu svonefndra evruskuldabréfa. Francois Hollande, hinn nýkjörni forseti Frakklands, fékk þarna tækifæri til að kynna hugmyndir sínar um að Evrópusambandið beiti sér af krafti til þess að koma af stað hagvexti í stað þess að einblína eingöngu á sparnað og aðhald í ríkisrekstri. Á leiðtogafundi G8-ríkjanna, sem haldinn var í Bandaríkjunum um helgina, fengu hugmyndir hans góðan hljómgrunn. Jafnvel Angela Merkel, Þýskalandskanslari, var komin á þá skoðun að hagvöxtur skipti ekki síður máli en aðhaldið. Ágreiningur var hins vegar um það hvaða aðferðum ætti að beita til þess að koma hagvexti af stað í kjölfar kreppunnar sem hrjáð hefur flest evruríkin undanfarin misseri. Þjóðverjar hafa haldið fast í andstöðu sína við útgáfu evruskuldabréfa, sem evruríkin sautján myndu gefa sameiginlega út og myndu nýtast sem lánsfé til framkvæmda. Með útgáfu slíkra skuldabréfa myndi hins vegar skuldastaða Þýskalands, rétt eins og hinna evruríkjanna, versna nokkuð, og slíkt telur Merkel sér engan veginn stætt á að samþykkja. Fyrir fundinn í gær hitti Hollande forsætisráðherra Spánar, Mariano Rajoy, sem kallaði sérstaklega eftir aðstoð frá Evrópusambandinu við að fá lánsvexti lækkaða. Spánn færi að öllum líkindum, ásamt Ítalíu, einna verst út úr því ef Grikkland kemst í greiðsluþrot og tæki jafnvel ákvörðun um að yfirgefa evrusvæðið. Leiðtogar evruríkjanna hafa hins vegar, rétt eins og leiðtogar G8-ríkjanna gerðu á fundi sínum um helgina, lagt áherslu á að Grikkir haldi evrunni. - gb, - þeb
Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Svíar líta til kjarnorkuvopna Erlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Fleiri fréttir Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Mannfallið að nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Sjá meira