Spáð brjáluðu veðri á sunnudag 12. maí 2012 09:00 Landsbjörg varar fólk við að vera á ferðinni á sunnudag vegna ofsaveðurs. Fréttablaðið/Valli
Veðurstofan varar við stormi með rigningu og snjókomu víða um land á morgun. Spáð er allt að 23 metrum á sekúndu og mun ganga í norðaustan- og norðanátt með rigningu eða slyddu og síðan snjókomu um norðan- og austanvert landið. Úrkomulítið verður sunnanlands, þó mikið hvassviðri eða stormur. Björn Sævar Einarsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir veðrið verða verst á öllu norðanverðu landinu. „Fyrst verður þetta á Vestfjörðum, en færist norður yfir og verður hvassast á austanverðu landinu um kvöldið,“ segir hann. „Það verður sennilega þá komið víða tveggja til sex stiga frost.“ Að sögn Björns má alltaf búast við svona veðurfari í maí, þetta sé ekkert óvenjulegt. Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg er því beint til ferðafólks að hafa góðar gætur á veðurspám á morgun og mánudag. Fólk skuli skipuleggja ferðir sínar þannig að ekki skapist af þeim erfiðleikar eða hætta og best sé að halda kyrru fyrir á meðan veðrið gengur yfir. Ef nauðsynlegt þykir að leggja land undir fót skuli skilja eftir ferðaáætlunina á vefnum www.safetravel.is. Í næstu viku fer veður svo kólnandi á landinu öllu og spáð er vægu frosti síðdegis á morgun á Norðurlandi en frostlausu sunnanlands. Þá dregur úr vindi á þriðjudag en spáð er frosti um mest allt land, en 0 til 5 stiga hita að deginum syðra. Áfram verður kalt í veðri út vikuna, kaldast fyrir norðan. - sv
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira