Tugmilljóna dósasvindl á ári 20. apríl 2012 08:00
Neytendur og framleiðendur drykkja í skilaskyldum umbúðum snuða Endurvinnsluna árlega um tugi milljóna króna og hefur svindlið farið vaxandi. Fyrirtækið áformar nú að tæknivæða móttöku umbúða til að bregðast við svindlinu, og íhugar að segja upp samningi við Sorpu um móttöku umbúða. Algengt virðist að þeir sem skila inn dósum og flöskum á endurvinnslustöðvar ýki fjölda umbúðanna sem þeir skila, og komist upp með það, segir Helgi Lárusson, framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar. Þá hafa drykkjarframleiðendur orðið uppvísir af því að segjast framleiða mun færri umbúðir en þeir gera í raun og veru, og þurfa þar af leiðandi að greiða mun minna fyrir endurvinnslu umbúðanna en þeir ættu að gera, segir Helgi. Hann segir stóra framleiðendur á borð við Vífilfell og Ölgerðina þrýsta mjög á að við þessu verði brugðist. Hann segir það skekkja samkeppnisstöðuna ef eitt fyrirtæki borgi skilvíslega 14 krónur á hverja dós eða flösku, en annað borgi mun lægri upphæð. Endurvinnslan kannar nú hvernig hægt sé að bregðast við svindlinu. Hingað til hefur almenningur getað komið með umbúðir á endurvinnslustöðvar Sorpu, en nú er í skoðun að hætta því samstarfi, segir Helgi. Hann segir Endurvinnsluna hafa áhuga á því að nýta sér tæknina til að bregðast við stöðunni. Með því að koma upp vélum til að taka á móti umbúðum megi slá tvær flugur í einu höggi, segir Helgi. Í fyrsta lagi geti neytendur ekki svindlað á vélunum. Í öðru lagi lesi vélarnar strikamerki á umbúðunum, og því hægt að halda utan um fjölda umbúða sem stafi frá hverjum framleiðanda. Þetta myndi hins vegar óhjákvæmilega þýða að tekið verði á móti umbúðunum á færri stöðum en nú er gert, segir Helgi. Lítill áhugi er á því að fara sömu leið og í Skandinavíu, þar sem verslanir eru skyldaðar til að taka á móti umbúðum, enda kostnaðurinn við það kerfi gríðarlegur, segir Helgi. Hann segir að tekin verði ákvörðun um breytingar á móttöku umbúða á næstunni. Einnig stendur til að breyta lögum sem skylda framleiðendur drykkjarvara til að standa straum af kostnaði við endurvinnslu þeirra, segir Helgi. Hann segir viðurlög við svindli framleiðenda engin, og því þurfi að breyta.- bj
Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Sigldu af stað með mótmælandann um borð Innlent Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Innlent Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Innlent Spá allt að fjörutíu stiga hita Erlent Fleiri fréttir Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní Sjá meira