Fréttaskýring: Morð vekur athygli á valdabaráttu 14. apríl 2012 14:00 Hjónin Bo og Gu bjuggu í Chongqing þar sem Bo var leiðtogi flokksins. Fréttablaðið/ap
Stjórnmálamaður í Kína var sviptur öllum embættum innan Kommúnistaflokksins í kjölfar morðásakana. Talið tengjast valdabaráttu innan flokksins. Er morðmál hluti af valdabaráttu innan kínverska Kommúnistaflokksins? Morð á breskum kaupsýslumanni hefur undanfarnar vikur komið mikilli valdabaráttu í Kommúnistaflokknum í Kína í sviðsljósið. Háttsettur maður innan flokksins, Bo Xilai, var sviptur öllum embættum sínum á þriðjudag og tilkynnt var að eiginkona hans væri grunuð um aðild að morði. Talað er um málið sem stærsta stjórnmálahneyksli Kína í rúmlega tuttugu ár. Ástandið sem nú varir er óvenjulegt og hafa sumir sérfræðingar leitt líkum að því að málið eigi rætur að rekja til komandi valdaskipta. Málið hófst með dauða kaupsýslumannsins Neils Heywood, sem hafði búið í Kína í um tíu ár. Heywood fannst látinn á hótelherbergi í borginni Chongqing í nóvember í fyrra. Lögregla sagði hann hafa látist vegna ofneyslu áfengis og var sú útskýring tekin trúanleg af fjölskyldu hans og breskum yfirvöldum. Heywood er sagður hafa verið vinur eiginkonu Bo, Gu Kailai, og sonar þeirra, Bo Guagua. Í febrúar komst Bo Xilai í fréttir, þegar Wang Lijun, aðstoðarborgarstjóri og lögreglustjóri í Chongqing flúði á skrifstofur bandaríska sendiráðsins í borginni Chengdu og sótti þar um hæli. Hann óttaðist um öryggi sitt. Hann hafði verið náinn samstarfsmaður Bo en var lækkaður í tign í janúar eftir að hann greindi Bo frá því að verið væri að rannsaka mál fjölskyldunnar, en ýmsar sögusagnir um ríkidæmi þeirra og líferni höfðu verið lífseigar. Wang hélt því fram þegar hann sótti um hæli að Neil Heywood hefði verið myrtur. Í kjölfar þess báðu bresk stjórnvöld um að rannsókn yrði hafin aftur og það var gert. Á þriðjudag var svo greint frá því að Gu hefði verið handtekin og færð í varðhald ásamt starfsmanni á heimili þeirra hjóna. Þau eru grunuð um morðið á Heywood. Bo hafði þegar verið sviptur leiðtogastöðunni, en á þriðjudag var honum einnig vikið úr stjórnmálaráðinu vegna „alvarlegra agabrota“. Skipt verður um forystu í Kommúnistaflokknum í haust, en það er gert á tíu ára fresti. Venjulega fara slík valdaskipti fram í friði, enda Kommúnistaflokknum mikið í mun að sýnast sameinaður og sterkur. Forystu Kommúnistaflokksins er oft skipt í tvo hópa, sem nú eru sagðir í mikilli valdabaráttu. Í öðrum hópnum er forsetinn Hu Jintao, forsætisráðherrann Wen Jiabao og stuðningsmenn þeirra. Í hinum hópnum eru aðallega stjórnmálamenn frá Shanghai, og verndari þeirra er Jiang Zemin fyrrverandi forseti. Í þessum hópi var Bo Xilai. Fram að þessu máli hafði verið talið líklegt að Bo yrði hækkaður í tign á fundinum í haust og kæmist í níu manna fastanefnd stjórnmálaráðsins, sem er æðsta stofnun flokksins, en Bo átti sæti í því. Hann var vinsæll leiðtogi flokksins í borginni Chongqing og vakti athygli fyrir aðgerðir sínar gegn skipulagðri glæpastarfsemi og fyrir að endurvekja gamla kommúníska söngva og sögur. Hann var umdeildur vegna þessara mála og þrátt fyrir vinsældir átti hann líka marga óvini. Ekki er vitað hvort hann verði ákærður fyrir spillingu vegna afskipta sinna af rannsókn á fjölskyldunni. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira