Ferðuðust með rútu til Þýskalands Henry Birgir Gunnarsson skrifar 21. mars 2012 06:00 Sara Björk skoraði eina markið í fyrri leiknum og verður í framlínunni aftur í dag,nordic photos/getty images
Íslendingaliðið Malmö mætir þýska liðinu Frankfurt í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í dag. Þetta er seinni leikur liðanna en Malmö vann fyrri leikinn 1-0 með marki Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Þóra B. Helgadóttir átti einnig mjög góðan leik í marki Malmö og þær báðar verða báðar í byrjunarliði Malmö í dag. „Við komum til Þýskalands á sunnudag. Það tók líka ansi langan tíma enda fórum við með rútu. Ekki alveg það skemmtilegasta sem ég hef gert. Það var hrikalega leiðinlegt enda tók ferðin um tólf tíma," sagði Sara Björk við Fréttablaðið í gær en það fór ágætlega um liðið samt í ferðalaginu enda er Malmö með fína rútu fyrir liðið. Lið Malmö spilar sína leiki á gervigrasi en í leiknum í dag fá þær að leika á grasi. „Ég er mjög fegin að geta komist á gras. Við æfum nefnilega líka á gervigrasi alla daga. Þetta verður þægileg tilbreyting." Sara segir að það sé virkilega góð stemning í liðinu fyrir leikinn enda ætli það sér að komast áfram í keppninni og sýna að Malmö sé eitt af fjórum bestu liðum Evrópu í dag. „Það var mikilvægt fyrir okkur að fá að ekki á okkur mark á heimavelli. Ef við náum að skora þá erum við í sterkri stöðu. Það kemur ekkert annað til greina en að klára þennan leik og koma okkur í undanúrslit." Sara Björk er vön því að spila á miðjunni hjá landsliðinu en í liði Malmö leikur hún sem framherji. „Mér gengur vel frammi og á meðan svo er þá þarf ekkert að breyta," sagði Sara en er hún vanmetin markaskorari? „Ég veit það ekki. Mér hefur oft gengið líka vel að skora þegar ég spila á miðjunni. Ég er samt óhefðbundinn framherji að því leyti að ég vinn mikið til baka. Ég er lítið fyrir að hanga bara í fremstu víglínu." Það hafa undanfarið borist fréttir af því frá Svíþjóð að Malmö standi mjög illa fjárhagslega og hætta er á að það fari hreinlega í þrot fari svo að borgaryfirvöld komi ekki til aðstoðar. „Það er ekkert að trufla mig mikið. Ég og liðið erum að hugsa um leikinn sem er fram undan," sagði Sara en félagið hefur þrátt fyrir vandræðin náð að standa við fjárhagslegar skuldbindingar sínar gagnvart leikmönnum. „Það er ekkert sagt mikið við okkur en ég nenni ekki að pæla í þessu. Ég pæli bara í að æfa og spila vel."
Fótbolti Mest lesið „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti „Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Sport Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport Celtic og Rangers áfrýja Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport „Sagði bara við hann, ég skal taka þetta“ Sport Tuchel segir Palmer of oft fjarverandi Sport Fleiri fréttir „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ „Höfum talað digurbarkalega um það“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Sjáðu stórkostlega aukaspyrnu Daníels Tristans gegn Frökkum Lærisveinn Heimis tók af skarið: „Leikurinn við Ísrael ætti ekki að fara fram“ Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Umfjöllun: Ísland - Frakkland 1-1 | Draumamark Daníels og eitt stig Kósíheit inni og volg mjólk eftir æfingu: „Galið að skjóta svona á okkar kynslóð“ Arnar og Orri sátu fyrir svörum daginn fyrir fyrsta leik Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Sjáðu mörkin í Osló og Dorgu nota Ödegaard eins og hundasleða Kominn fram úr Zlatan og Ronaldo Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt „Maður verður með hjartað í buxunum næstu tvær helgar“ Stressandi dagur: „Gerðist mjög seint“ Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Klopp og Xavi sættust á stig Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Noregur - Danmörk 3-2 | Fyrsti sigurinn á Dönum í 26 ár Kósovó - Írland 1-0 | Heimir og félagar byrja á tapi í Kosovo Ókeypis að sjá vonarstjörnur Íslands og Frakklands Landsliðin flúðu haustlægðina Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjá meira