Skrópaði fyrir dómi og mundi svo ekki neitt 8. mars 2012 09:15 Farið er fram á að Tómas, Axel og Kristján verði sakfelldir fyrir tilraun til manndráps vegna skotárásar. Fréttablaðið/Anton „
Brotin eru mjög alvarleg og beindust gegn lífi og heilsu brotaþola,“ sagði Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir aðstoðarsaksóknari í lokamálflutningi vegna skotárásar sem átti sér stað á lóð bílasölu við Tangabryggju í Reykjavík í nóvember síðastliðnum. Aðalmeðferð málsins lauk um hádegisbil í gær fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og dóms að vænta eftir þrjár til fjórar vikur. Farið var fram á sex ára fangelsisdóm yfir Kristjáni Halldóri Jenssyni fyrir tilraun til manndráps þegar hann hleypti í tvígang af afsagaðri haglabyssu á bíl með tveimur mönnum innanborðs. Fyrst skaut hann að bílnum á lóð bílasölunnar og svo út um bílglugga eftir eltingarleik við hringtorg við Bíldshöfða. Margrét Unnur kvað svo þriggja ára fangelsisdóm hæfilegan fyrir Tómas Pálsson Eyþórsson og tvö ár fyrir Axel Má Smith sem gefið er að sök að hafa tekið þátt í árásinni og skipulagningu hennar. Komið hefur fram fyrir dómi að málið eigi sér rætur í deilum við annað fórnarlamb árásarinnar vegna meintrar skuldar Tómasar. Ákærðu segja ætlan sína bara hafa verið að hræða fórnarlambið frá frekari innheimtuaðgerðum. Maðurinn sem fyrir árásinni varð var færður fyrir dóm í gærmorgun eftir að hafa skrópað daginn áður. Fyrir dómi bar hann svo við algjöru minnisleysi um nær alla þætti málsins, þar á meðal um skýrslugjöf sína hjá lögreglu strax eftir árásina. Hann hefur einnig fallið frá skaðabótakröfu í málinu. Hinn maðurinn sem var í bílnum gerir 1,2 milljóna króna skaðabótakröfu vegna árásarinnar. - óká
Mest lesið Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Innlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Innlent „Alveg hræðilegt ástand“ Innlent „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Innlent Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Innlent Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Erlent Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Innlent Fleiri fréttir Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla „Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Þurfa að brúa sex milljarða króna bil Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Styrkur svifryks áfram hár í borginni Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Óbreytt ástand á Landspítala og svifrykið hrellir borgarbúa Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Sjá meira