Eyjólfur: Áttum ekki skilið að tapa leiknum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. mars 2012 08:00 Íslenska U-21 liðið hefur nú tapað fjórum keppnisleikjum í röð. fréttablaðið/stefán
Íslenska U-21 lið karla tapaði í gær fyrir Aserbaídsjan í undankeppni EM 2013, 1-0. Sigurmarkið kom undir lok fyrri hálfleiks, beint úr aukaspyrnu. Þjálfarinn Eyjólfur Sverrisson var að vonum svekktur eftir leikinn en var þó ánægður með frammistöðu sinna manna. „Við vorum betri aðilinn og áttum ekki skilið að tapa leiknum. Við fengum færin en náðum einfaldlega ekki að setja boltann yfir línuna," sagði Eyjólfur en besta færi Íslands fékk Hörður Björgvin Magnússon, leikmaður Juventus, er hann skallaði boltann í slá um fimmtán mínútum fyrir leikslok. „Strákarnir lögðu sig fram og áttu góða kafla, sérstaklega í seinni hálfleik. Þá settum við mikla pressu á Aserana. Ég veit ekki hversu oft boltinn rann í gegnum teiginn þeirra án þess að við náðum að setja tána í boltann," sagði Eyjólfur. Ísland saknaði nokkurra leikmanna í leiknum sem gátu ekki gefið kost á sér af ýmsum ástæðum. „Það vantar mikið af mönnum en það er ekkert út á þá leikmenn að setja sem spiluðu leikinn, þeir stóðu sig vel." Þetta var fyrsti sigur Asera í riðlinum en liðið er nú með fjögur stig – Ísland þrjú. „Ég ræddi við þjálfara Aserbaídsjan eftir leikinn og hann sagði mér að Ísland hefði átt betri leik gegn þeim hér úti en bæði Noregur og Belgía [sem eru í sama riðli]. Þeir áttu meira skilið úr þeim leikjum heldur en úr þessum. En í þetta skiptið datt þetta bara þeirra megin – þetta var bara einn af þessum leikjum." Næsti leikur Íslands í riðlinum verður einmitt gegn Aserum á Laugardalsvellinum í júní.
Fótbolti Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Fleiri fréttir Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Sjá meira