Ný ævintýri í Kasakstan Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. mars 2012 08:30 Hannes í leik með FH síðastliðið sumar. Síðan þá hefur hann spilað í Rússlandi og er nú kominn til Kasakstan. Fréttablaðið/Stefán
Hannes Þ. Sigurðsson gekk í vikunni frá samningi við FC Atyrau í Kasakstan sem gildir til loka tímabilsins. Hannes heldur því áfram að spila á framandi slóðum því á seinni hluta síðasta tímabils lék hann með Spartak Nalchik í Rússlandi. Hann var samningslaus þegar forráðamenn Atyrau höfðu samband við umboðsmenn Hannesar. „Mér fannst þetta heillandi," sagði Hannes í samtali við Fréttablaðið í gær. „Liðið var að leita sér að sóknarmanni og það var mælt með mér við þjálfarann. Þannig kom þetta til." Þjálfarinn umræddi heitir Zoran Flipovic og á langan feril að baki, bæði sem þjálfari og leikmaður. Hann var landsliðsþjálfari Svartfjallalands frá 2007 til 2010 en sem leikmaður lék hann lengst af sem sóknarmaður með Rauðu stjörnunni í Belgrad. „Mér líst auðvitað gríðarlega vel á þjálfarann og mér fannst mjög spennandi að fá að spila fyrir mann sem státar af slíkum ferli," segir Hannes. Hér er gott að veraHannes lék lengi vel á Norðurlöndunum sem og eitt tímabil í Englandi. Hann kom svo aftur til Íslands og spilaði rúmlega hálft tímabil með FH í fyrra áður en hann hélt utan til Rússlands. „Ég sé alls ekki eftir því og ég heillaðist mjög af Rússlandi og nú Kasakstan. Fótboltinn í þessum heimshluta er á uppleið og menn ætla sér stóra hluti. Hér ríkir líka velmegun, fólkið er afar vingjarnlegt og hér er gott að vera." Hann segist aldrei hafa verið hræddur við að prófa eitthvað nýtt. „Þetta er mikið ævintýri og hér kynnist maður ýmsu sem er manni framandi, sérstaklega eftir að hafa verið lengi á Norðurlöndunum. Það er gaman að upplifa nýja hluti og kynnast nýrri menningu og án efa meiri upplifun heldur en að vera allan atvinnumannaferilinn í Skandinavíu." Sjálfsagt eru fáir Íslendingar sem þekkja mikið til Kasakstan. Landið nær yfir tvær heimsálfur, Evrópu og Asíu, en knattspyrnusamband landsins fékk inngöngu í Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, árið 2002. Landið er ógnarstórt, um 2,7 milljónir ferkílómetra og er stærra en öll Vestur-Evrópa. Atyrau er olíuborg en þess fyrir utan er almennt mikið um peninga í knattspyrnunni í Kasakstan. „Þetta er stærsti samningur sem ég hef gert og er ég mjög ánægður með þá hlið mála," sagði Hannes. Góður gluggi fyrir RússlandHafþór Hafliðason er einn umboðsmanna Hannesar en umboðsskrifstofan Sportic hefur séð um hans mál. „Hannes vildi vera áfram í Rússlandi en fyrst það gekk ekki er gott að komast til Kasakstan. Það er góður gluggi fyrir rússneska boltann," sagði Hafþór. „Kasakstan er olíuveldi og þarna eru lið með mikinn pening. Deildin hefur styrkst mikið." Hafþór segir að lönd á borð við Rússland og Kína séu spennandi kostir fyrir knattspyrnumenn. „Eins og sést á því hversu margar stórstjörnur eru farnar til þessara landa þá er mikill peningur í knattspyrnunni í þessum heimshluta. Landslagið hefur verið að breytast mikið á síðustu 5-10 árum og fyrir leikmenn sem eiga ekki tök á því að komast í stærstu deildir Evrópu er fjárhagslega mjög hagstætt að fara á þessa nýju markaði. Hannes hefur mikinn metnað fyrir því að spila í Rússlandi og verður sú deild mjög stór áður en langt um líður. Við teljum að þetta sé gott skref í þá áttina. Hann þarf að komast á beinu brautina, fá að spila mikið svo hann geti skorað mikið af mörkum. Við teljum að þetta sé rétta liðið fyrir hann." Sjálfur segir Hannes að liðið ætli sér að vera í fremstu röð í Kasakstan. „Liðið endaði í tíunda sæti á síðustu leiktíð og því erfitt fyrir mig að meta stöðuna nákvæmlega. En það ríkir bjartsýni hér og stefnan hefur verið sett á efstu fimm sætin."
Fótbolti Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Sjá meira