Bíleigendur búa við allt aðrar aðstæður hér en í útlöndum Óli Kristján Ármannsson skrifar 17. febrúar 2012 05:30 Frá ársbyrjun 2008 hafa skattar á bensín hækkað um fjórðung og dísilolíu um fimmtung, reiknað á föstu verðlagi. Fréttablaðið/Pjetur
Þótt bensín sé dýrara í Noregi en hér segir framkvæmdastjóri FÍB Norðmenn að jafnaði helmingi fljótari að vinna fyrir lítranum. Bensínskattar hafa aukist um fjórðung frá 2008 og skattar á dísil um fimmtung. Á sama tíma og hlutfall skatta í heildarverði eldsneytis hefur dregist lítillega saman síðustu ár hefur krónutala skattanna hækkað um fjórðung og fimmtung.Runólfur ÓlafssonReiknað á föstu verðlagi hefur bensínverð hækkað um 31 prósent síðan í febrúar 2008. Á sama tíma hefur hlutfall skatta í lítranum farið úr 50,6 prósentum í 48,4 prósent. Skattaupphæðin hefur hins vegar hækkað um fjórðung, farið úr 95,5 krónum í tæpar 120 krónur. Svipaða sögu er að segja af verðþróun dísilolíu sem hefur á sama tíma hækkað um 29,7 prósent. Skatthlutfallið hefur lækkað úr rúmum 49 prósentum í rúm 45 prósent, en krónutala skattanna hækkað um fimmtung. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), segir hæpnar þær fullyrðingar sem komið hafi fram á fundi hans með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í byrjun vikunnar um að ekki hallaði endilega á Ísland í alþjóðlegum samanburði. „Ég er hins vegar nýkominn frá Noregi þar sem bensínlítrinn kostar 300 krónur. Norðmaðurinn er hins vegar helmingi fljótari að vinna fyrir sínum bensínlítra en Íslendingurinn,“ segir Runólfur og kveður einn nefndarmanna líka hafa bent á að skattar á bensín seu núna hlutfallslega lægri en oft áður. „Og það er svo sem rétt,“ segir hann, en bendir um leið á að krónutalan sem innheimt sé í skatta hafi engu að síður hækkað um ríflega 70 prósent meðan almennt verðlag hafi bara hækkað um sem nemur 30 prósentum. Aukinheldur bendir Runólfur á að umfjöllun og umræða um eldsneytiskostnað í Evrópu snúist um að draga úr akstri í þéttbýli og þar séu almenningssamgöngur góðar. „Þær aðstæður eru ekki uppi hér, þar sem eru tæplega 320 þúsund manns á 103 þúsund ferkílómetrum,“ segir hann og kveðst vita dæmi þess að langt austur í sveitum hafi hátt eldsneytisverð knúið fólk til að koma sér saman um að einn færi á stórum bíl í Bónus á Selfossi á hálfsmánaðar fresti. „Í mið-Ósló, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi eru allt aðrar þarfir og bjargir.“ Samkvæmt nýjum útreikningum Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) hefur eldsneytiskostnaður meðalstórs fjölskyldubíls aukist um 219 þúsund krónur síðustu fjögur ár.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 17. febrúar 2012
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja Sjá meira