Vinnuferðir en ekki boðsferðir 7. febrúar 2012 09:15 Ætlar ekki að hætta Haukur Hafsteinsson segir skýrslu rannsóknarnefndarinnar ekki gefa honum tilefni til að segja af sér. Fréttablaðið/arnþór „
Starfsmennirnir sem fóru í þessar ferðir – þeir voru ekki að þiggja neitt boð. Það er meginatriði og þess vegna voru þetta engar boðsferðir,“ sagði Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, í viðtali við Kastljós RÚV í gærkvöldi. Helgi Seljan spurði hann um ferðir sem starfsmenn lífeyrissjóðsins fóru í á kostnað fyrirtækja fyrir bankahrun. Hann sagðist ekki líta svo á að starfsmennirnir hefðu þegið boð, heldur einfaldlega farið í ferð að beiðni yfirmanna sinna. „Þeir voru að fara í vinnuferð og höfðu enga fjárhagslega hagsmuni af því hvort fyrirtækið sem var að kynna starfsemina borgaði eða lífeyrissjóðurinn,“ sagði Haukur. Hann sagði aðspurður að skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóðina gæfi ekki tilefni til þess að hann segði af sér. Lífeyrissjóðirnir hafi verið að glíma við afleiðingar alvarlegrar, alþjóðlegrar fjármálakreppu sem skýrði tap hjá sjóðum upp á rúma hundrað milljarða við hrun bankakerfisins. Öll gagnrýni sem fram kæmi í skýrslunni yrði þó tekin til greina. Haukur sagði menn geta velt fyrir sér hvort sjóðirnir hafi fjárfest um of í fyrirtækjum tengdum Baugi og Existu. Hins vegar hafi þau félög verið fyrirferðarmikil á íslenskum hlutabréfamarkaði og menn hafi í öllum tilvikum verið langt innan við þau fjárfestingarmörk sem lög kváðu á um.- sh
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Sjá meira