Maradona ósáttur við uppsögnina | Al Wasl býður til kveðjuhátíðar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. júlí 2012 09:45 Maradona bregður á leik. Nordicphotos/Getty
Diego Maradona segist vonast til þess að funda með stjórn Al Wasl fljótlega og komast að annarri niðurstöðu en þeirri sem tekinn var í vikunni um að vísa honum úr starfi. Maradona skrifaði þetta á heimasíðu sína (www.diegomaradona.com) í gær en fyrr um daginn var honum vikið úr starfi knattspyrnustjóra félagsins sem staðsett er í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. „Það var alltaf ósk mín að dvelja áfram í landinu sem tók svo vel á móti mér. Ég stend í þakkarstund við sjeikinn fyrir að hafa gefið mér tækifæri til þess að þjálfa lið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum," skrifaði Maradona sem virðist þó ekki tilbúinn að taka uppsögninni þegjandi og hljóðalaust. „Því miður sendi félagið frá sér yfirlýsingu sem ég er ekki sammála því markmið mitt var að halda áfram að stýra Al Wasl. Ef félagið hefur ekki möguleika á að kaupa leikmenn til félagsins af fjárhagslegum ástæðum getum við rætt það við stjórnina og leitað lausna," sagði Maradona en öllu þjálfarateymi hans var sömuleiðis sagt upp störfum. Maradona segist vonast til þess að funda fljótlega með stjórninni og sé nokkuð viss um að það vilji hún líka og lausn á málinu finnist. Í yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að það vilji blása til kveðjuhátíðar til heiðurs Maradona. Það sé til marks um hið einstaka og trausta samband sem ríki á milli félagsins og Maradona. „Við höfum ekki tímasett viðburðinn en bíðum svars frá Maradona til að geta ákveðið tíma," er haft eftir Mohammed bin Dokhan, aðstoðarstjórnarformanni Al Wasl. Maradona hefur að hans sögn ekki svarað boðinu. Al Wasl vann ekki til verðlauna á síðasta tímabili sem var það eina undir stjórn Maradona. Liðið hafnaði í áttunda sæti í deildinni.
Fótbolti Tengdar fréttir Maradona rekinn frá As Wasl Diego Maradona hefur verið vikið úr starfi sem knattspyrnustjóri Al Wasl í Dubai Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 10. júlí 2012 18:56 Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Íslenski boltinn Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Bríet Fjóla keypt til Þróttar Blatter baunar aftur á FIFA: „Lengsta hlé í sögu fótboltans“ Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Bowen heldur tryggð eftir fallið Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Flugóður forseti FIFA Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? „Fjögur ár eru langur tími“ „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Ari Leifsson í Stjörnuna Sjá meira
Maradona rekinn frá As Wasl Diego Maradona hefur verið vikið úr starfi sem knattspyrnustjóri Al Wasl í Dubai Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 10. júlí 2012 18:56