Sauðdrukkinn maður fór húsavillt og sofnaði í hjónarúminu 1. ágúst 2012 23:00 Maðurinn verður að öllum líkindum ákærður fyrir innbrot. Myndin tengist fréttinni ekki beint. mynd/AFP
Heldur undarlegt mál kom upp í bænum Putnam í Bandaríkjunum fyrr í vikunni. Þá staulaðist sauðdrukkinn maður inn í svefnherbergi ókunnugra hjóna og lagðist á milli þeirra. Hjónin segja að maðurinn hafi laumast inn í herbergi þeirra aðfaranótt mánudags. Þau skipuðu manninum, sem var í afar annarlegu ástandi, að yfirgefa húsið hið snarasta. Maðurinn þvertók fyrir það og lagðist upp í rúmið. Hjónin höfðu samband við lögreglu og biðu hennar fyrir utan húsið. Loks komu lögregluþjónarnir og þustu þeir inn í svefnherbergið. Var maðurinn þá sofnaður í hjónarúminu. „Þetta er ekki húsið mitt," sagði maðurinn svo eftir að lögregla vakti hann. Hann sagðist hafa setið að sumbli á heimili sínu fyrr um kvöldið. Hann gat ekki útskýrt hvernig hann endaði á heimili hjónanna. Maðurinn verður að öllum líkindum ákærður fyrir innbrot. Það er bandaríski fréttamiðillinnn The Livingston County Daily Press sem greinir frá þessu.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Sjá meira