Íslenskir rithöfundar kepptust um athygli á Crimefest Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. maí 2012 15:28 Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir eru stödd á Crimefest.
Íslendingar eiga tvo fulltrúa á alþjóðlegu glæpasagnaráðstefnunni Crimefest þetta árið, eins og kom fram í Fréttablaðinu í vikunni. Það eru þau Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson. Ráðstefnuna sækja um fjögur hundruð rithöfundar, lesendur, útgefendur og gagnrýnendur. Metsölubók Yrsu, Ég man þig, er væntanleg í Bretlandi á næstunni, en sú bók keppir jafnframt um Glerlykilinn fyrir Íslands hönd þetta árið. Nýjasta bók Ragnars, Myrknætti, var nýverið seld til þýska útgáfurisans Fischer Verlage. „Við Yrsa lentum nú eiginlega í því að þurfa að keppa um gesti í dag," segir Ragnar Jónasson í léttum dúr í samtali við Vísi. Svo óheppilega vildi til að pallborðsumræður Yrsu um siðferðileg álitamál í glæpasögum voru settar á sama tíma í dagskrána og pallborðsumræður Ragnars um skandinavískar glæpasögur. Allt fór þó vel að lokum því báðir atburðirnir voru vel sóttir. Yrsa hafði fyrr um daginn jafnframt tekið þátt í umræðum um löggur, einkaspæjara og lögmenn. Þau Ragnar og Yrsa hafa þó einnig fengið tækifæri til að standa saman í keppni við aðra rithöfunda því á fimmtudagskvöld kepptu þau í spurningakeppni ráðstefnunnar og lið þeirra náði fimmta sæti. „Það verður reyndar að viðurkennast að við vorum með tvo mjög sterka erlenda gesti í íslenska liðinu okkar," segir Ragnar. Hann tekur þó fram að erlendu gestirnir hafi ekki átt svar við einni erfiðustu spurningu kvöldins: Hvernig er nafn aðalpersónunnar í bókum Yrsu Sigurðardóttur stafað. Yrsa fékk sjálf að svara þeirri spurningu fyrir hönd liðsins. Ráðstefnan er haldin á gömlu og glæsilegu hóteli í Bristol sem Ragnar segir að gæti vel átt heima í bók eftir Agöthu Christie. Á meðal heimskunnra rithöfunda sem þar eru staddir eru P.D. James, Lee Child og Frederick Forsyth.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira