Segir SÞ styðja hryðjuverkalið 2. október 2012 04:00 Walid Al Moallem utanríkisráðherra Sýrlands er ósáttur við afskipti af innanríkismálum. nordicphotos/AFP
Walid al Moallem, utanríkisráðherra Sýrlands, segir að enginn friður geti orðið í Sýrlandi fyrr en nágrannalöndin hætti að styðja hryðjuverkamenn. Jafnframt segist hann furðu lostinn yfir því að aðildarríki Sameinuðu þjóðanna, sem hafa undanfarin ár háð stríð gegn hryðjuverkum, skuli nú styðja hryðjuverkamenn gegn sýrlensku stjórninni, og krefjast þess að Bashar al Assad Sýrlandsforseti láti af embætti. „Þetta eru blygðunarlaus afskipti af sýrlenskum innanríkismálum,“ segir Moallem. Í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, segir hins vegar Mokhtar Lamani, sem er fulltrúi friðarsendinefndar Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins í Sýrlandi, að eitt stærsta vandamálið, sem stendur í vegi fyrir því að hægt sé að semja um frið í Sýrlandi, sé hversu sundraðir hópar uppreisnarmanna eru. Þeir eigi erfitt með að koma sér saman um samningsafstöðu gagnvart sýrlensku stjórninni vegna þess að ekki ríkir traust á milli þeirra sjálfra innbyrðis. Harðir bardagar geisa í landinu. Árás stjórnarhersins á þorp í norðanverðu Sýrlandi kostaði yfir tuttugu manns lífið í gær. Þá hafa gríðarlegar skemmdir orðið á gömlum markaðstorgum í höfuðborginni Damaskus.- gb
Mest lesið Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Innlent Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni Innlent Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Innlent Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Innlent Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Innlent Fleiri fréttir Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Sjá meira