Erlent

Soyuz geimfar lenti með þrjá geimfara úr Alþjóðlegu geimstöðinni

Rússneskt geimfar af Soyuz gerð lenti heilu og höldnu í Kazakhstan snemma í morgun með þrjá geimfara úr alþjóðlegu geimstöðinni.

Þessir geimfarar höfðu dvalið í stöðinni í 123 daga. Um er að ræða tvo Rússa og Bandaríkjamann. Þrír aðrir geimfarar voru sendir í stöðina í maí s.l. og ætlunin er að senda þrjá til viðbótar frá Kazakhstan í næsta mánuði.

Sem stendur eru rússnesku Soyuz geimförin eina leiðin til að flytja geimfara til og frá alþjóðlegu geimstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×