Erlent

Skotmaður drepinn - minnsta kosti tveir látnir

Empire State byggingin.
Empire State byggingin.
Óður skotmaður virðist hafa skotið að minnsta kosti tíu einstaklinga fyrir utan Empire State bygginguna í New York samkvæmt fréttastofunni CNN. Meðal annars skaut maðurinn gangandi vegfaranda í höfuðið sem hann elti uppi. Óvopnaður öryggisvörður elti manninn þegar hann ætlaði að flýja af vettvangi. Síðar kom lögreglan og virðist hún hafa skotið manninn til dauða.

Ekki er talið að maðurinn hafi tengsl við hryðjuverkasamtök samkvæmt fréttastofunni. Talið er að minnsta kosti tvö fórnarlömb mannsins séu látin.

Mikill viðbúnaður er á Manhattan vegna árásarinnar en götum í grendinni hafa verið lokaðar af lögreglu. Skýjakljúfurinn, Empire State er einn vinsælasti áningastaður ferðamanna í borginni.


Tengdar fréttir

Fimm skotnir við Empire state bygginguna

Minnsta kosti fimm einstaklingar hafa verið skotnir fyrir utan Empire State bygginguna í New York en samkvæmt fréttastofunni CNN átti árásin sér stað fyrir um klukkan eitt í dag að íslenskum tíma, eða rúmlega níu um morguninn í New York.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×