Sjómenn geta kynt undir frekari deilum 18. september 2012 00:15 Kínverskir bátar á leið til eyjanna umdeildu eftir að veiðibanni sumarsins í Austur-Kínahafi lauk. fréttablaðið/afp
Tugir þúsunda Kínverja hafa undanfarna daga mótmælt harðlega kaupum japanskra stjórnvalda á eyjaklasa í Kínahafi. Bæði kínversk og japönsk stjórnvöld gera tilkall til eyjanna. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hvetur til sátta. Um eitt þúsund kínverskum fiskibátum var í gær siglt til eyjaklasa í Kínahafi, sem Kínverjar kalla Diaoyu en Japanir Senkaku. Bæði kínversk og japönsk stjórnvöld gera tilkall til. Ekki var í gær ljóst hvort um mótmælaaðgerð var að ræða en á vef sænska blaðsins Dagens Nyheter kom fram að japanska fréttastofan Kyodo hefði sagt frá siglingunni og að hún hefði vitnað í kínverska útvarpsstöð. Linus Hagström, sænskur sérfræðingur í málefnum Austur-Asíu, segir í viðtali við Dagens Nyheter að hugmyndin um að Kína geti reynt að ná yfirráðum yfir eyjunum með því að senda þangað eitt þúsund fiskibáta hafi verið við lýði í fjörutíu ár. Hann telur ástandið mjög alvarlegt. Frá því að í ljós kom í síðustu viku að japanska ríkisstjórnin hefði keypt eyjarnar af einkaaðila hafa Kínverjar daglega efnt til mótmæla. Tugir þúsunda hafa tekið þátt og hefur komið til átaka milli mótmælenda og óeirðalögreglu. Ráðist hefur verið gegn japönskum sendiráðum, fyrirtækjum og verslunum og skemmdarverk unnin á þeim. Nokkur japönsk fyrirtæki hafa gert hlé á starfsemi sinni í Kína vegna mótmælanna. Það eru hins vegar ekki bara Kínverjar og Japanar sem vilja ráða yfir eyjunum og auðlindunum í hafinu umhverfis þær, heldur einnig stjórnvöld í Taívan. Forseti Taívans kynnti nýlega friðartillögu um að ríkin þrjú ynnu saman að þróun svæðisins. Deilan um eyjarnar hefur staðið yfir í á annað hundrað ár. Hún þykir hafa fengið enn meiri pólitíska þýðingu eftir að kínverskur togari lenti í árekstri við tvo báta japönsku strandgæslunnar við eyjarnar árið 2010. Skipstjóri togarans var handtekinn og var honum ekki sleppt fyrr en eftir sautján daga. Efnt var til víðtækra mótmæla í Kína auk þess sem fjórir japanskir ríkisborgarar voru handteknir. Þar að auki var útflutningur á sjaldgæfum jarðmálmum takmarkaður. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Leon Panetta, hvatti í gær deiluaðila til að gæta sín. Panetta, sem var í Tókýó, höfuðborg Japans, sagði mistök af hálfu annars hvors aðilans geta leitt til átaka.ibs@frettabladid.is
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Sjá meira