Eigandi knattspyrnufélags segir íþróttina vonlausa Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. febrúar 2012 10:45 Palmer er einn auðugasti maður Ástralíu. Nordic Photos / Getty Images
Stuðningsmenn knattspyrnufélaga velta reglulega þeirri spurningu fyrir sér hversu miklir knattspyrnuunnendur ríkir eigendur félaga þeirra eru. Clive Palmer, eigandi Gold Coast United í áströlsku deildinni, tók af allan vafa um helgina. Clive Palmer, milljónamæringur úr námuiðnaðinum í Ástralíu, kom Gold Coast United á koppinn árið 2008. Liðinu vegnaði þokkalega fyrstu árin, hafnaði í þriðja og fjórða sæti deildarinnar, en síðan hefur sigið á ógæfuhliðina. Liðið situr um þessar mundir í botnsæti áströlsku deildarinnar með fimmtán stig eftir 21 umferð. Þá er aðsókn á leiki liðsins í lágmarki. Aðeins 1723 mættu á heimaleik liðsins gegn Adelaide United fyrir tveimur vikum. „Ég hef ekki einu sinni gaman af íþróttinni. Þetta er vonlaus íþrótt. Ruðningur er miklu betri íþrótt," sagði Palmer í viðtali við dagblað í Brisbane um helgina. Ummæli Palmer hafa vakið mikla athygli enda á knattspyrna erfitt uppdráttar í Ástralíu þar sem ruðningur og áströlsk knattspyrna njóta mikilla vinsælda. Ben Buckley, framkvæmdastjóri ástralska knattspyrnusambandsins, hefur gagnrýnt ummælin harðlega. „Við buðum Clive velkominn í knattspyrnuumhverfið og vorum ánægð með fjárfestingu hans. Það skiptir ekki máli hve pirraður hann er um þátttöku sína, ummælin eru langt yfir strikið," sagði Buckley sem minnti á ábyrgð hans gagnvart kollegum sínum og öðrum fjárfestum í deildinni.
Fótbolti Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti Rústaði úrslitunum á Wimbledon Sport Fleiri fréttir Leik lokið: Pólland 3 - 2 Danmörk | Bæði lið í leit að fyrstu stigunum Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Onana frá næstu vikurnar Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ánægður með Arnar og er klár í haustið „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Diljá Ýr búin að semja við Brann Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Óttar Magnús færir sig um set á Ítalíu Topplið ÍR tapaði þremur mikilvægum stigum Kærkominn endurkomusigur Grindvíkinga Liverpool leggur númerið hans Jota á hilluna að eilífu Segir hitann á HM hættulegan Belgar kveðja EM með sigri Spánn áfram með fullt hús stiga Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Lárus Orri byrjaður að bæta við sig Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Crystal Palace fær ekki að spila í Evrópudeildinni Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Krabbameinslyf felldi fótboltamann á lyfjaprófi Fyrst Íslendinga til að skora og leggja upp í sama leik á EM EM í dag: Nóg komið af leiðindum, kveðjustund og Copacabana „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Ísak Snær lánaður til Lyngby Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Sjá meira