Leik AEK tvívegis frestað | Á leið í fjórðu deildina? Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. febrúar 2012 11:45 Stuðningsmenn AEK hafa miklar áhyggjur af stöðu mála hjá félagi sínu. Nordic Photos / Getty Images
Fresta þurfti viðureign AEK Aþenu gegn OFI frá Krít í efstu deild gríska boltans í tvígang um helgina. Prentun miða fyrir leikinn, sem fram átti að fara í Aþenu, var ekki heimiluð vegna fjárhagsvandræða félagsins. Í frétt Reuters-fréttastofunnar segir að orðrómur sé á kreiki að forsvarsmenn AEK velti fyrir sér að sækja um nýja kennitölu fyrir félagið og byrja upp á nýtt, í fjórðu deild. Forseti stuðningsmannafélags AEK, Makis Kasnakidis, segir orðróminn tómt kjaftæði. „Sem forseti stuðningsmannafélagsins get ég sagt ykkur að enginn er að velta þessu fyrir sér og sem stjórnarmaður í félaginu get ég fullvissað ykkur um að þetta hefur ekki verið rætt, ekki einu sinni í gríni," sagði Kasnakidis við gríska útvarpsstöð. AEK hefur glímt við fjárhagserfiðleika undanfarna mánuði og leitar logandi ljósi að fjárfestum. Forsvarsmenn félagsins hafa verið boðaðir á fund hjá Evrópska knattspyrnusambandinu, UEFA, á fimmtudaginn þar sem málið verður tekið fyrir. Talið er að AEK þurfi að afla fjögurra milljóna evra fyrir fimmtudaginn eða sem nemur um 650 milljónum íslenskra króna til þess að forðast refsingu. Gríska félagið PAOK slapp naumlega við alvarlega refsingu hjá UEFA í síðasta mánuði. Félagið, sem er stórskuldugt líkt og AEK, tókst á síðustu stundu að afla fjár sem varð til þess að UEFA sektaði félagið og gaf því frest til 30. júní til að finna lausn á málum sínum. Takist það ekki verður félaginu meinað að spila í Evrópukeppnum næstu þrjú árin og sektað frekar. Óvíst er hvenær viðureign AEK og OFI fer fram. Öllum leikjum sem fara áttu fram um næstu helgi hefur verið frestað af deildinni í mótmælaskyni við ný íþróttalög í landinu. Íslendingarnir Eiður Smári Guðjohnsen og Elfar Freyr Helgason eru á mála hjá AEK. Þá er Arnar Grétarsson yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. Liðið situr í fjórða sæti deildarinnar að loknum 21 leik, fimmtán stigum á eftir Olympiakos sem er í efsta sæti.
Fótbolti Mest lesið Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Utan vallar: Ég get ekki meir Handbolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sport „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Enski boltinn Ísland - Ungverjaland | Úrslitaleikur um efsta sætið í riðlinum Sport Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti „Hræddir erum við ekki“ Sport Fleiri fréttir Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúnna hjá United Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Ísland spilar við gestgjafa HM og Haítí Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram Sjá meira