Vonbrigði að tillögu Bjarna skuli hafa verið vísað frá Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. mars 2012 19:13 Birgir Ármannsson og Ólöf Nordal eru fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. „
Þetta voru vonbrigði, en ég get ekki sagt að þetta komi endilega svo mikið á óvart," segir Birgir Ármansson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Hann segir að sjálfstæðismenn hafi grunað að fylgjendur ákærunnar gegn Geir hafi verið búnir að tryggja máli sínu stuðning þegar tillaga Bjarna Benediktssonar um að fella málið niður var afgreidd út úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd með þeirri niðurstöðu að vísa ætti tillögu Bjarna frá. Birgir sagði í Reykjavík síðdegis í dag að samt sem áður hafi sjálfstæðismenn vonast til að tillaga um að fella ákæruna niður fengi örlítið meiri stuðning. Margir þingmenn hafi breytt um stefnu frá því að frávísunarkrafa á tillögu Bjarna var lögð fram í lok janúar og felld. „Það hefur verið þannig bæði innan Samfylkingarinnar og VG að þeir þingsmenn sem tóku það í mál núna í janúar að þetta mál fengi efnislega meðferð í þinginu, þeir hafa verið undir stanslausum árásum og það er eiginlega eina skýringin sem ég get ímyndað mér á sinnaskiptum nokkurra í Samfylkingunni," sagði Birgir. Birgir segir að réttarhöldin muni nú hafa sinn gang og hann voni og treysti því að þau fari vel og skikkanlega fram. „Ég ber traust til landsdómsmanna allra að þeir komist að réttri niðurstöðu, sem ég held reyndar að verði Geir hagfelld," sagði Birgir. Hann sagði að Alþingi hefði ákæruvald, hefði tekið ranga ákvörðun haustið 2010 um að ákæra Geir og nú hafi verið tækifæri til að leiðrétta það. „Meirihluti þingsins lét það tækifæri fram hjá sér fara og við það verður auðvitað bara að búa," segir Birgir.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Fleiri fréttir Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Sjá meira