Erlent

Seifur er stærstur allra hunda

Seifur svalar þorstanum.
Seifur svalar þorstanum. mynd/AP
Heimsmetabók Guinnes hefur útnefnt hinn þriggja ára gamla Seif sem stærsta hund veraldar. Seifur er stóri dani og er 112 sentímetrar frá loppu að herðakambi.

Á afturfótunum er Seifur 2 metrar og 23 sentímetrar og gnæfir yfir eiganda sínum, Denise Doorlag. Seifur er aðeins 2.54 sentímetrum hærri en fyrrverandi heimsmethafi, Giant George.

Seifur, sem er rétt rúmlega 70 kíló, étur þrettán kíló af fóðri á tveimur vikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×