Stjórnmálamaður dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot 17. desember 2012 11:34
Rune Øygard, einn af þekktustu sveitarstjórnarmönnum Verkamannaflokksins í Noregi, var í morgun dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlku. Svo virðist sem SMS-skeyti og Skype-samtöl á milli þeirra hafi orðið til þess að hann hafi verið sakfelldur. Stúlkan er í dag sextán ára gömul en þegar brotin gegn henni áttu sér stað var hún á aldrinum þrettán til fimmtán ára. Øygard neitaði sök við aðalmeðferð málsins en viðurkenndi þó að hafa klæmst við stúlkuna á samskiptaforritinu Skype og í SMS-skilaboðum. Dómari taldi sannað að hann hafi bortið gegn stúlkunni heima hjá sér, í sumarhúsi og á ferðalögum í nokkrum bæjum í Noregi. Hann leit meðal annars til þess að framburður stúlkunnar hafi verið trúverðugur frá byrjun. Þá segir í dómnum að þegar stúlkan eignaðist kærasta og vildi slíta sambandi sínu við Øygard hafi hann orðið reiður og öfundsjúkur. Það voru foreldrar stúlkunnar sem kærðu Øygard í september í fyrra og hóf lögreglan strax rannsókn á málinu. Þá var Øygard oddviti í sveitarfélaginu Vågå og neitaði hann að segja af sér eftir að málið kom upp. Hann fór hinsvegar í veikindarleyfi eftir að ákæran var gefin út, en eftir að hann viðurkenndi í aðalmeðferðinni að hafa klæmst við stúlkuna, var honum veitt lausn frá embætti. Hann var dæmdur til að greiða stúlkunni um þrjár og hálfa milljón í miskabætur. Øygard er einn þekktasti sveitarstjórnarmaður Verkamannaflokksins í Noregi. Árið 2007 lýsti Jens Stoltenberg, forsætisráðherra, honum sem sinni fyrirmynd og pólitískum læriföður.
Mest lesið Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Innlent Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Erlent Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Innlent Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent Fleiri fréttir Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Sjá meira