Erlent

Fjórðungur vill óhefta úlfaveiði

ÞJ skrifar
Í norska úlfastofninum eru nú um þrjátíu dýr.
Í norska úlfastofninum eru nú um þrjátíu dýr.
Sjö af hverjum tíu Norðmönnum eru mótfallnir því að veiðar á úlfum verði gefnar frjálsar, tæpur fjórðungur er fylgjandi.

Villti úlfastofninn í Noregi er aðeins um þrjátíu dýr, og þegar eru sjö dýr felld árlega samkvæmt sérstöku leyfi. Eftir að nokkur svæðisráð gáfu út leyfi til að veiða tólf dýr í viðbót tóku yfirvöld í taumana og bönnuðu veiðarnar. Náttúruverndarsamtök telja óverjandi að auka veiðar úr ekki stærri stofni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×