Gætum þurft að semja tvisvar um sjávarútveginn Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. apríl 2012 14:30
Hugsanlega þurfa Íslendingar að semja tvisvar um sjávarútvegsmál fari svo að Evrópusambandið breyti löggjöf sinni eftir að búið er að semja um málaflokkinn, en kafli um sjávarútveg í viðræðum við sambandið verður opnaður á síðari hluta þessa árs. Samkvæmt nýlegum skoðanakönnunum vill meirihluti íslensku þjóðarinnar klára aðildarviðræður við Evrópusambandið og leggja aðildarsamning í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ísland hefur nú lokað 10 köflum af þrjátíu og þremur í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.Málin rædd á óformlegum nótum við ríki sem eiga hagsmuna að gæta Í undirbúningi er nú mótun samningsmarkmiða í sjávarútvegi gagnvart Evrópusambandinu. „Það er ekki hlutverk framkvæmdastjórnarinnar að velta fyrir sér og tjá sig um tímamörk því eins og þú veist byggist opnun kaflanna á samningum aðildarríkjanna og stöðu undirbúningsins. Þegar Ísland er reiðubúið að semja vinnum við okkar vinnu og umboð okkar hljóðar upp á að semja vel og með gæði að markmiði þannig að báðir aðilar megi vel við una," segir Peter Stano, talsmaður Štefan Füle, stækkunarstjóra Evrópusambandsins. Undanfarnar vikur og mánuði hafa íslenskir embættismenn rætt þessi mál á óformlegum nótum við kollega sína í Evrópusambandinu hjá þeim ríkjum sem eiga hagsmuna að gæta í sjávarútvegi, eins og t.d Portúgal og Spáni. Í þessum ríkjum er skilningur á mikilvægi sjávarútvegs fyrir Ísland, en þó hafa menn sett sig upp á móti lagareglu sem takmarkar meirihlutaeign útlendinga í íslenskum fyrirtækjum í sjávarútvegi, en Ísland hefur sem stendur undanþágu frá EES-samningnum fyrir þessari reglu þannig að útlendingar geta aldrei eignast stærri hlut en 49 prósent í íslenskum útvegsfyrirtækjum.Ætíð markmið framkvæmdastjórnarinnar að taka mið af sérstöðu ríkja Sérlausnir fyrir Ísland frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins eru ekki útilokaðar, en öll aðildarríki sambandsins þurfa að samþykkja sérlausnir ef á að veita þær. „Það er afar mikilvægt að íslenska þjóðin fái það ekki á tilfinninguna að hagsmunir hennar hafi skaðast. Þjóðin þarf að sjá þá kosti sem aðildarviðræðurnar færa þeim, ekki aðeins í þessum kafla heldur í öllu aðildarferlinu. Hér er ekki um að ræða neitt hulið markmið ESB að stela hagsmunum Íslands heldur að hafa hagsmuni allra aðildarríkjanna í huga með þeim hætti að þeir séu sem best sniðnir að þörfum aðildarríkjanna og þjóða þeirra. Saga aðildarviðræðnanna við önnur ríki sýnir okkur að það er ætíð markmið framkvæmdastjórnarinnar og ESB að taka mið af sérstöðu og þörfum á landsvísu og kröfum og hagsmunum hvers og eins aðildarríkis því þannig vinnum við. Við reynum ætíð að ná samkomulagi þannig að allir hagnist," segir Peter Stano. Sameiginleg fiskveiðistefna ESB er nú til endurskoðunar. Giorgio Gallizioli, lögfræðingur hjá sjávarútvegsstofnun ESB, segir að ekki sé útilokað að Ísland þurfi að semja tvisvar. Þ.e.a.s ef kafla um sjávarútveg verði lokað og sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB verði síðan breytt áður og ef Ísland gengur inn. Fréttastofan var í Brussel í boði European Journalism Centre, sem eru frjáls félagasamtök sem staðsett eru í Maastricht. thorbjorn@stod2.is
Tengdar fréttir Takmarkanir á fjárfestingum útlendinga verða vandamál Þótt kafli um sjávarútveg hafi ekki verið opnaður í aðildarviðræðum Íslands við ESB hafa vísbendingar borist frá nokkrum aðildarríkjum að þau séu mótfallin takmörkunum á fjárfestingu útlendinga í sjávarútvegi hér á landi, en samkvæmt undanþágu sem Ísland hefur frá EES-samningnum geta útlendingar aldrei eignast ráðandi hlut í sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi því þeir mega ekki eiga meira en 49 prósent. 30. mars 2012 15:30 Talsmaður stækkunarstjóra: Viðræður ganga vel vegna góðs undirbúnings Ísland hefur nú lokað 10 köflum af þrjátíu og þremur í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Á sumum sviðum ganga viðræðurnar afar hratt fyrir sig og undirstrikar það gæði undirbúnings þeirra. Þetta er mat talsmanns stækkunarstjóra ESB. 1. apríl 2012 21:30 Mest lesið Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar Innlent „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Erlent Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Innlent „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Innlent „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi Innlent Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Innlent Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Innlent Herþotur sendar á loft vegna rússneskrar eftirlitsflugvélar Erlent Byrjaðir að kenna hvor öðrum um stöðvun ríkisreksturs Erlent Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Innlent Fleiri fréttir Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Löng bið eftir að nauðgari hefji afplánun og betlmenning Sleppt lausum eftir yfirheyrslu Seldi dóp fyrir fjórtán milljónir á hálfu ári Lýsir villu og svima en segist hafa séð ljósið Stefnir í prófkjör, borgarfulltrúar undir feldi og hugsanlega sótt að Heiðu Framlengja gistiheimildina fram á vor Eldra fólk þurfi ekki að endurnýja skírteinið svo oft Grunsamlegt ferðalag og fjarstæðukenndar skýringar „Nauðsynlegt að þetta verði gert af krafti“ Fólk hvatt til að taka strætó Frakkar viðurkenna Palestínu og nýr geðspítali gæti risið í Fossvogi „Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“ Nú má heita Ívalú, Þorbirna og Emerentíana Kvartmilljón fyrir bólusetningu eftir alvarleg veikindi dóttur Frítt í Strætó um allt land í dag Réðst á konur og sló í miðborginni „Dýrlingurinn“ aftur með leigubílaleyfi ESB myndi taka Íslandi opnum örmum Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ „Dreifbýlið hefur alltaf haft áhyggjur af því að fjármagnið sogist til þéttbýlisins“ Þorgerður Katrín endurkjörin Sjá meira
Takmarkanir á fjárfestingum útlendinga verða vandamál Þótt kafli um sjávarútveg hafi ekki verið opnaður í aðildarviðræðum Íslands við ESB hafa vísbendingar borist frá nokkrum aðildarríkjum að þau séu mótfallin takmörkunum á fjárfestingu útlendinga í sjávarútvegi hér á landi, en samkvæmt undanþágu sem Ísland hefur frá EES-samningnum geta útlendingar aldrei eignast ráðandi hlut í sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi því þeir mega ekki eiga meira en 49 prósent. 30. mars 2012 15:30
Talsmaður stækkunarstjóra: Viðræður ganga vel vegna góðs undirbúnings Ísland hefur nú lokað 10 köflum af þrjátíu og þremur í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Á sumum sviðum ganga viðræðurnar afar hratt fyrir sig og undirstrikar það gæði undirbúnings þeirra. Þetta er mat talsmanns stækkunarstjóra ESB. 1. apríl 2012 21:30