Fótbolti

Svisslendingur á heimleið eftir Twitter-ummæli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Svissneski knattspyrnumaðurinn Michel Morganella hefur verið vikið úr Ólympíulandsliði þjóðar sinnar vegna niðrandi ummæla um suður-kóreska knattspyrnumenn.

Morganella sagðist vilja drepa alla suður-kóreska knattspyrnumenn að loknu 2-1 tapi Sviss gegn Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum í gær.

Svissneska dagblaðið Le Matin birti ummæli kappans en Twitter-síðu hans hefur síðar verið eytt. Hann hefur beðist afsökunar á hegðun sinni en ákvörðun ólympíunefndar Sviss verður ekki haggað.

Morganella er annar íþróttamaðurinn á Ólympíuleikunum í London sem meinuð er þátttaka vegna ummæla á Twitter. Gríski þrístökkvarinn Voula Papachristou var send heim í síðustu viku eftir niðrandi ummæli um innflytjendur frá Afríku.


Tengdar fréttir

Engir Ólympíuleikar vegna kynþáttaníðs

Grísku þrístökkskonunni Pasaskevi Papachristou hefur verið vikið úr Ólympíuhópi Grikkja vegna skrifa sinna á samskiptavefinn Twitter. Reuters greinir frá þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×