Erlent

Þrjú gráhærð mótorhjólagengi upprætt í New York

Lögreglan í New York hefur upprætt þrjú gráhærð mótorhjólagengi í Brooklyn en allir meðlimir þeirra eru komnir á sextugsaldurinn eða eldri.

Samhliða þessari aðgerð var lagt hald á tölvuvert magn af vopnum, þar á meðal litla fallbyssu. Gengin seldu vopn í stríðum straumum frá tattústofum sem þeir réðu yfir í Brooklyn og Queens hverfunum.

Gengin báru nöfnin Forbidden Ones, Dirty Ones og Trouble Makers sem lauslega mætti þýða sem Þeir bönnuðu, Þeir skítugu og Vandræðagemsarnir.

Það fylgir sögunni að þegar krafist var gæsluvarðhalds yfir meðlimum gengjanna voru fjórir þeirra orðnir það gamlir og lasburða að flytja þurfti þá á sjúkrahús í staðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×