Hræðileg markvarðarmistök komu Gana í undanúrslitin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. febrúar 2012 12:00
Gana vann 2-1 sigur á Túnis í framlengdum leik í 8-liða úrslitum Afríkukeppninnar í gær. Þá duttu heimamenn frá Gabon úr leik gegn Malí í vítaspyrnukeppni að loknu 1-1 jafntefli. Aymen Mathlouthi, markvörður Túnis, var skúrkurinn þegar þjóð hans datt úr leik í Afríkukeppninni í Gabon og Miðbaugs-Gíneu í gærkvöldi. Undir engri pressu missti hann fyrirgjöf fyrir fætur Andre Ayew sem sendi knötinn í tómt markið. Markið kom í fyrri hálfleik framlengingar og reyndist sigurmarkið í leiknum. Gana komst yfir snemma leiks þegar fyrirliðinn John Mensah skoraði með skalla. Túnismenn, fulltrúar Norður-Afríku í átta-liða úrslitum, jöfnuðu metin skömmu fyrir hálfleik. Allt var í járnum og þurfti að framlengja leikinn þar sem úrslitin réðust á fyrrnefndum mistökum markvarðar Túnismanna. Gana mætir Sambíu í undanúrslitum á miðvikudag. Sambía lagði hina gestgjafana frá Miðbaugs-Gíneu 3-0 á laugardag. Gabon-menn, sem halda keppnina með Miðbaugs-Gíneu, duttu úr leik í vítaspyrnukeppni að loknu 1-1 jafntefli gegn Malí. Heimamenn komust yfir snemma í síðari hálfleik við mikinn fögnuð áhorfenda. Malí tókst að jafna skömmu fyrir leikslok. Ekkert var skorað í framlengingu og réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni sem má sjá hér. Malí mætir Fílabeinsströndinni í undanúrslitum.
Fótbolti Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Fleiri fréttir Víkingur R. - Keflavík | Er aftur Evrópuþynnka? United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Þróttur - ÍBV | Sæti í bikarúrslitum undir Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Van Bommel tekur við Belgíu Entist skammt í þjálfarastólnum Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Töluðu við Ancelotti áður en þeir reyndu við Guardiola Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Chelsea að hreppa Lacroix Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Hættir með landsliðinu María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ „Sigurinn nærir“ „Margt jákvætt í leik okkar að þessu sinni“ Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Héldu út manni færri þar til átta mínútur voru eftir Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Róbert Frosti fagnaði sigri en Brann kastaði frá sér góðri forystu Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Kaupa Conteh frá Stjörnunni Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færði Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands