Erlent

Öflugur jarðskjálfti við Filippseyjar - Flóðbylgjuviðvörun gefin út

Hér má sjá skjálftamiðjuna.
Hér má sjá skjálftamiðjuna. mynd/usgs.gov
Öflugur jarðskjálfti reið yfir austurströnd Filippseyja fyrir stuttu. Samkvæmt upplýsingum frá Bandarísku jarðfræðistofnuninni var skjálftinn 7.9 stig. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út fyrir Papúa Nýju-Gíneu og fleiri Kyrrahafslönd. Upptök skjálftans voru á rúmlega þrjátíu kílómetra dýpi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×