Fótbolti

Smalling verður ekki með á EM

Chris Smalling, varnarmaður Man. Utd, mun ekki geta leikið með enska landsliðinu á EM vegna meiðsla í nára. Þetta var staðfest í morgun.

Smalling varð fyrir meiðslunum í leiknum gegn Wigan. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir Smalling sem hefur verið að leika vel.

"Chris meiddist illa og það er ekki nokkur leið að hann geti spilað með á EM. Við erum að meta hvernig sé best að höndla þessi meiðsli," sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd.

Danny Welbeck verður aftur á móti klár fyrir EM þó svo hann sé lítillega meiddur sem stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×