Forsetinn gefur sjálfum sér hæstu einkunn 9. október 2012 00:00 Mohammed Morsi veifar til mannfjöldans meðan honum er ekið í forsetabifreiðinni inn á leikvang í Kaíró.nordicphotos/AFP „
Ég bý enn í leiguíbúð,“ sagði Mohammed Morsi Egyptalandsforseti í ræðu um helgina, þar sem hann gaf sjálfum sér hæstu einkunn fyrir frammistöðuna fyrstu hundrað dagana í embætti. „Ef einhver sér mig aka nýrri bifreið, sem ekki er í ríkiseigu, þá á hann að tilkynna það,“ bætti hann við. Morsi var kosinn forseti Egyptalands síðastliðið vor, sá fyrsti sem kosinn er til þess embættis í frjálsum kosningum þar í landi. Forvera hans, Hosni Mubarak, var steypt af stóli í byltingu almennings eftir þriggja áratuga valdaferil. Áður en Morsi tók við embætti gaf hann ákveðin loforð um nokkur atriði sem hann ætlaði sér að afreka strax á fyrstu hundrað dögunum í embætti. Meðal annars lofaði hann því að bæta úr eldsneytisskorti í landinu, betrumbæta niðurgreitt brauð, hafa hemil á glæpaöldunni, hreinsa ruslið af götunum og draga úr umferðarteppum. Morsi hefur látið mæla árangurinn og hélt því fram að hann hafi náð áttatíu prósenta árangri í brauðmálinu, sextíu prósentum í umferðarmálunum, fjörutíu í sorphirðu, 95 prósentum í eldsneytismálum og sjötíu prósentum í öryggismálum.- gb
Mest lesið Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Erlent Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Erlent Grænlendingar ná ekki að klára hvalveiðikvóta Erlent Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Innlent Efast um að olíuleit beri árangur Innlent Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Erlent Píratar taka upp formannsembætti Innlent „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Innlent Vill breyta nafni Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Grænlendingar ná ekki að klára hvalveiðikvóta Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Trump og Selenskí funda á ný Miklar tafir á fjölda flugvalla vegna netárásar Cruz sagði hótanir Carr líkt og frá mafíósa í Goodfellas Eistar óska eftir samráði NATO eftir að Rússar rufu lofthelgi þeirra Gary Busey dæmdur fyrir kynferðisbrot Íslendingur grunaður um morð í Svíþjóð Rússneskum herþotum flogið inn í lofthelgi Eistlands Sagður neita að samþykkja hergagnasendingu til Taívan Norska krónprinsessan í veikindaleyfi Reiðir Könum sem skreyta sig með fána Kanada Rússar áfrýja niðurstöðu um hrap malasísku farþegaþotunnar Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Banna kennslubækur eftir konur í háskólum landsins Bandaríkin beittu neitunarvaldinu gegn kröfu um vopnahlé Segir Pútín hafa valdið sér „miklum vonbrigðum“ Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar Eltihrellir sat fyrir lögregluþjónum og skaut þrjá til bana Segir Fallon og Meyers næsta: „Gerið þetta NBC!!!“ Hans Enoksen er látinn Telja að manngerð hlýnun hafi valdið 16.500 viðbótardauðsföllum í sumar 80.000 lögreglumenn í viðbragðsstöðu vegna boðaðra mótmæla í dag Menningarmálaráðherrann ósáttur og vill skrúfa fyrir fjármagn til ísraelsku kvikmyndaverðlaunanna Munu leggja fram vísindalegar sannanir fyrir því að Brigitte sé líffræðilega kona Fundu Guð í App store Nýr kókaínkóngur í Mexíkó Sjá meira
Menningarmálaráðherrann ósáttur og vill skrúfa fyrir fjármagn til ísraelsku kvikmyndaverðlaunanna