Shevchenko leggur landsliðsskóna á hilluna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. júní 2012 00:13 Shevchenko söng þjóðsönginn ásamt löndum sínum fyrir leikinn gegn Englandi í kvöld. Nordicphotos/Getty
Andriy Shevchenko hefur leikið sinn síðasta opinbera landsleik fyrir Úkraínu. Þetta staðfesti framherjinn að loknu 1-0 tapinu gegn Englandi í lokaumferð D-riðils Evrópumótsins í knattspyrnu í kvöld. Shevchenko er án nokkurs vafa besti knattspyrnumaður Úkraínu síðan þjóðin öðlaðist sjálfstæði frá Sovétríkjunum. Framherjinn ætlar að skipuleggja kveðjuleik með landsliðinu til að kveðja stuðningsmenn sína með virktum. „Hver eru plön mín núna? Mig langar bara að komast heim, faðma börnin mín og kyssa konuna mína," sagði Shevchenko við blaðamenn eftir leikinn í kvöld. Framherjinn, sem er 35 ára, er bæði yngsti og elsti markaskorarinn í sögu landsliðs þjóðar sinnar. Hann hefur einnig skorað flest mörk, 48 í 111 leikjum. Hann byrjaði leikinn í kvöld á bekknum vegna hnémeiðsla en kom inn á í síðari hálfleik. Shevchenko byrjaði mótið með látum og skoraði bæði mörk Úkraínu í 2-1 sigri á Svíum. Í kjölfarið fylgdi 2-0 tap gegn Frökkum og tapið í kvöld sem varð til þess að liðið komst ekki upp úr riðlinum. Shechenko var valinn knattspyrnumaður ársins í Evrópu árið 2004, eini Úkraínumaðurinn til að hljóta þá nafnbót, og var auk þess knattspyrnumaður Úkraínu sex sinnum. Hann sló fyrst í gegn með Dynamo Kiev í heimalandinu áður en hann komst í guðatölu hjá AC Milan á Ítalíu. Eftir erfiðan tíma hjá Chelsea í ensku úrvalsdeildinni sneri hann aftur til Dynamo liðsins í Kænugarði. Hann hefur lýst yfir áhuga á að ljúka ferlinum í MLS-deildinni í Bandaríkjunum.
Mest lesið „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Nói lánaður til Njarðvíkur Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Bríet Fjóla keypt til Þróttar Blatter baunar aftur á FIFA: „Lengsta hlé í sögu fótboltans“ Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Bowen heldur tryggð eftir fallið Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Sjá meira