Erlent

Farþegarflugvél rænt í Hollandi

Talið er að farþegaflugvél sem lenti á Schiphol-flugvell í Amsterdam fyrir skömmu hafi verið rænt.
Talið er að farþegaflugvél sem lenti á Schiphol-flugvell í Amsterdam fyrir skömmu hafi verið rænt.
Talið er að farþegaflugvél sem lenti á Schiphol-flugvell í Amsterdam fyrir skömmu hafi verið rænt. Flugvélin fór frá Malaga á Spáni í morgun. Lögreglumenn hafa umkringt vélina en farþegarnir eru ennþá um borð. Beðið er eftir samningamanni lögreglu til að ræða við flugstjóra vélarinnar.

Vélin er í eigu Vueling, en forsvarsmenn fyrirtækisins neita því að vélinni hafi verið rænt. Talsmaður flugfélagsins segir að misskilningur sé kominn upp vegna samskipta flugstjórans við flugturninn.

En hollenska lögreglan staðfestir aftur á móti við fréttastofuna Reuters að um flugrán sé að ræða.

Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×