Roberto Carlos ætlar að segja þetta gott í lok ársins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2012 15:30 Roberto Carlos Mynd/AFP
Brasilíski bakvörðurinn Roberto Carlos hefur nú gefið það út að hann ætli að leggja skóna á hilluna í lok ársins en kappinn hefur undanfarið spilað með rússneska liðinu Anzhi Makhachkala. Roberto Carlos mun þó ekki hætta afskiptum að fótboltanum því hann mun áfram vinna á bak við tjöldin hjá Anzhi. Roberto Carlos er orðinn 39 ára gamall og var farinn að spila heima í Brasilíu þegar hann fékk frábært tilboð frá rússneska félaginu. Hann hefur spilað þar síðan í febrúar í fyrra og tók tímabundið við þjálfun liðsins á síðasta tímabili. „Samningurinn minn við Anzhi rennur út í júní 2013 en ég hef ákveðið að segja þetta gott í desember," sagði Roberto Carlos í viðtali við spænska blaðið Marca. „Ég er ekki að hætta af því að skrokkurinn er búinn. Ég er að hætta af því að ég hef upplifað allt sem knattspyrnumaður og nú vil ég eyða meiri tíma með fjölskyldunni," sagði Roberto Carlos. „Ég mun halda áfram að vinna fyrir félagið og verð aðstoðarmaður forsetans Suleiman Kerimov því ég er skuldbundinn honum til æviloka. Hann hefur beðið mig að hjálpa sér við að skipuleggja félagið til næstu tíu ára," sagði Roberto Carlos. Roberto Carlos hefur spilað fyrir stóra klúbba eins og Palmeiras, Real Madrid og Inter Milan á ferlinum en hann hefur unnið allt á sínum ferli þar á meðal Heimsmeistaratitilinn með Brasilíu árið 2002.
Fótbolti Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Van Bommel tekur við Belgíu Entist skammt í þjálfarastólnum Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Töluðu við Ancelotti áður en þeir reyndu við Guardiola Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Chelsea að hreppa Lacroix Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Hættir með landsliðinu María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira