Erlent

Hákarlar syntu í kringum ömmuna

Illa farin eftir marglyttur
Illa farin eftir marglyttur
Hin sextíu og þriggja ára Diana Nyad þurfti að játa sig sigraða í gærkvöldi þegar hún reyndi að synda frá Kúbu til Bandaríkjanna eftir að hún var stungin af marglyttu. Auk þess voru nokkrir hákarlar farnir að hringsóla í kringum hana.

Þetta er í fjórða skiptið sem þessi hrausta amma reynir að synda þessa leið og í þetta skiptið var hún ekki í svokölluðu hákarlabúri - en þeir sundkappar sem hafa synt leiðina í gegnum tíðina hafa ætíð verið í slíku búri.

Hún hafði verið í 42 klukkutíma í sjónum áður en félagar hennar tóku hana upp í bát til sín af öryggisástæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×