Erlent

IAEA: Framleiðsla í kjarnorkuverum Írans eykst

Kjarnorkuver í Íran. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Kjarnorkuver í Íran. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. mynd/AFP
Alþjóðakjarnorkumálastofnun, sem starfar á vegum Sameinuðu þjóðanna, tilkynnti í dag að stjórnvöld í Íran hefðu aukið framleiðslugetu kjarnorkuversins Fordo um nær helming.

Um árabil hefur Íran verið sakað um að framleiða kjarnorkuvopn. Stjórnvöld þar landi þvertaka þó fyrir þetta og halda því fram að friðsamlegar forsendur liggi til grundvallar kjarnorkuáætlun landsins.

Frá árinu 2010 hefur Íran framleitt 189 kíló af auðguðu úrani.

Fulltrúar Alþjóðakjarnorkumálastofnunar segja að Íranstjórn hafi meinað þeim aðgangi að kjarnorkuverum landsins í Fordo og í Parchin-verinu í suðurhluta landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×