Fótbolti

Bandaríkin geta hefnt gegn Japan | Dramatík á Old Trafford

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Morgan skorar sigurmark Bandaríkjanna á Stretford-enda Old Trafford í kvöld.
Morgan skorar sigurmark Bandaríkjanna á Stretford-enda Old Trafford í kvöld. Nordicphotos/Getty
Kvennalandslið Bandaríkjanna í knattspyrnu vann dramatískan 4-3 sigur á Kanada í undanúrslitum í knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna í kvöld.

Christine Sinclair, framherji Kanada, skoraði þrennu fyrir Kanada sem komst þrívegis yfir í leiknum en Bandaríkin jöfnuðu í öll skiptin.

Allt stefndi í vítaspyrnukeppni þegar Alex Morgan skoraði sigurmark Bandaríkjanna á þriðju mínútu viðbótartíma í framlengingu.

Fögnuður Bandaríkjamanna á vellinum sem og stúkunni á Old Trafford að vonum mikill en þær kanadísku gátu ekki leynt vonbrigðum sínum.

Bandaríkin, sem eiga gullverðlaun að verja frá því í Peking 2008, mæta Japan í úrslitaleik mótsins og geta þar hefnt fyrir tap í úrslitum heimsmeistaramóts kvenna síðastliðið sumar.

Japan vann 2-1 sigur á Frökkum fyrr í dag. Japanir komust yfir eftir hálftímaleik og forystan varð 2-0 snemma í síðari hálfleik. Frakkar minnkuðu muninn stundarfjórðungi fyrir leikslok en nær komust þeir ekki.

Frakkar mæta því Kanada í leiknum um bronsið sem fram fer á fimmtudaginn líkt og úrslitaleikur Bandaríkjanna og Japana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×