Morsi óskar þjóðinni til hamingju með stjórnarskrána BBI skrifar 26. desember 2012 19:33 Mohammed Morsi, forseti Egyptalands. Mynd/AFP
Forseti Egyptalands óskaði í dag landsmönnum til hamingju með nýja stjórnarskrá sem samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann hvatti andstæðar fylkingar til að sameinast í þjóðarumræðu um framtíð landsins og sagði það væri forgangsverkefni að koma efnahag landsins á réttan kjöl. Í sjónvarpsávarpi talaði Mohammed Morsi, forseti Egyptalands, til egypsku þjóðarinnar í fyrsta sinn frá því stjórnarskrárdrögin voru samþykkt með 63% greiddra atkvæða. Hann sagði að eftir atkvæðagreiðsluna gæti þjóðin tekið næstu skref í átt til stöðugleika og öryggis. Hann sagði að efnahagsmál yrðu í forgangi og hann myndi reyna að lokka fjárfesta til landsins. „Ég mun verja öllum mínum kröftum til að koma efnahag landsins á skrið," sagði Morsi, en gjaldmiðill Egyptalands hefur ekki verið veikari í átta ár miðað við dollarann. Morsi viðurkenndi að það væru margir í landinu sem væru andvígir stjórnarskránni. Hann sagðist þó ekki líta niður á þá sem greiddu atkvæði gegn drögunum þar sem Egyptaland ætti ekki að vera land þar sem „aðeins ein skoðun er liðin". Hins vegar sagðist hann fyrirlíta þá sem beittu ofbeldi í atkvæðagreiðslunni. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Fleiri fréttir „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Sjá meira