Kuyt til Fenerbahce Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 3. júní 2012 14:45 MYND/NORDIC PHOTOS GETTY
Tyrkneska félagið Fenerbahce hefur samið við hollenska knattspyrnumanninn Dirk Kuyt sem var á mála hjá Liverpool. Kuyt gerir þriggja ára samning við Fenerbahce en frá þessu er greint á heimasíðu tyrkneska félagsins. Kuyt gekk til liðs við Liverpool sumarið 2006 frá Feyenoord, rétt eftir að Liverpool varð enskur bikarmeistari. Liverpool vann engan titil fimm fyrstu ár Kuyt hjá enska félaginu en hans eini titill með liðinu vannst í vetur þegar liðið hampaði enska deildarbikarnum. Kuyt lék 176 leiki með Liverpool og skoraði í þeim 51 mark en hann var fastamaður í liðinu undir stjórn Rafael Benitez en mátti sætta sig við minna hlutverk undir stjórn Kenny Dalglish í vetur og lét óánægju sína með það nokkrum sinnum í ljós. Kuyt skoraði fjölmörg mikilvæg mörk fyrir Liverpool. Hann skoraði í úrslitaleik Meistaradeidlarinnar 2007 þar sem AC Milan sigraði 2-1 auk þess sem hann tryggði liðinu sæti í úrslitaleiknum með marki úr vítaspyrnu gegn Chelsea í undanúrslitunum. Hann stóð undir nafni þegar hann skoraði sigurmarkið undir lok bikarleiks Liverpool og Manchester United í vetur auk þess sem hann skoraði úr vítaspyrnu í framlengingu úrslitaleiks deildarbikarsins gegn Cardiff í vetur, í leik sem Liverpool vann eftir vítaspyrnukeppni. Kuyt er fyrsti leikmaðurinn til að yfirgefa lið Liverpool eftir að Brendan Rodgers var ráðinn knattspyrnustjóri liðsins.
Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Fleiri fréttir Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Sjá meira