Erlent

Dreginn fyrir dómstóla fyrir að misbjóða heittrúuðum

BBI skrifar
Fazil Say situr við flygilinn.
Fazil Say situr við flygilinn. Mynd/AFP
Píanóleikarinn þekkti, Fazil Say, var leiddur fyrir dómstóla í Istanbúl í Tyrklandi ákærður fyrir að vekja hatur og misbjóða gildum múslima. Málið snýst um örfærslur sem hann skrifaði inn á Twitter síðu sína þar sem hann gerði góðlátlegt grín af öfgakenndum múslimum.

Say neitar sök og segist furðu lostinn að þurfa að tala máli sínu frammi fyrir dómurum.

Ef Say verður fundinn sekur á hann yfir höfði sér 18 mánaða fangelsisvist að hámarki.

Say skrifaði færslurnar sem um ræðir í apríl á þessu ári en í ákærunni gegn honum má finna nokkrar þeirra. Ein þeirra hljómar eitthvað á þessu leið: „Ég veit ekki hvort þið hafið áttað ykkur á því en þeir sem eru lúsablesar, smámenni, þjófar eða heimskingjar eru alltaf múslimar."

Fazil Say hefur spilað með New York fílharmóníunni, sinfóníuhljómsveit Berlínar og fleiri hljómsveitum. Hann hefur starfað sem menningarlegur sendiherra ESB o.fl.

Fjöldi aðdáenda tónlistamennsins flykktist að dómshúsinu í morgun og mótmælti fyrirtöku í máli hans með slagorðum eins og „Látið listamanninn í friði".

BBC segir frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×