Erlent

Assange óhultur enn um sinn

Julian Assange
Julian Assange
Rafael Correa, forseti Ekvadors, segir bresk stjórnvöld hafa dregið til baka hótun sína um að ráðast inn ekvadorska sendiráðið til þess að handtaka Julian Assange.

Assange, sem kenndur er við Wikileaks vefsíðuna, leitaði skjóls í sendiráðinu fyrir rúmum tveimur mánuðum síðan til þess að komast hjá framsali til Svíþjóðar.

Stjórnarmenn í Ekvador brugðust illa við þegar Bretar hótuðu að ráðast inn í sendiráð þeirra í London. Breska utanríkisráðuneytið hefur nú upplýst Correa að slíkt standi ekki lengur til. - sm




Fleiri fréttir

Sjá meira


×