Erlent

Yfir 7.500 manns hafa fallið í Sýrlandi

Sameinuðu þjóðirnar hafa áætlað að yfir 7.500 manns, flest almennir borgarar, hafi fallið í átökum sýrlenskra stjórnvalda við uppreisnarmenn í landinu frá því að átökin hófust í mars á síðasta ári.

Sameinuðu þjóðirnir segja að nokkuð traustar heimildir séu fyrir því að yfir 100 manns hafi fallið daglega suma daga. Sjálf segja sýrlensk stjórnvöld að nær 1.400 meðlimir öryggissveita landsins hafi fallið á fyrrgreindu tímabili.

Ekkert lát er enn á sprengjuárásum á borgina Homs og talið að tugir manna hafi fallið í þeim í gærdag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×