Lagerbäck: Þetta eru fyrstu skrefin Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 29. febrúar 2012 07:30 Sænski landsliðsþjálfarinn er brattur fyrir leikinn gegn Svartfellingum í dag.fréttablaðið/vilhelm
Lars Lagerbäck krefst þess að íslenska A-landsliðið í fótbolta geri fá mistök í vináttulandsleiknum gegn Svartfjallalandi í dag sem fram fer á Pod Goricom-leikvanginum í Podgorica. Þetta er annar leikur Íslands undir stjórn sænska þjálfarans, en Ísland tapaði 3-1 gegn Japan síðastliðinn föstudag í Osaka. Ísland stillir upp alveg nýju liði frá því í leiknum gegn Japan og er landsliðsþjálfarinn vongóður um að ná að leggja Svartfjallaland að velli. Ísland og Svartfjallaland hafa aldrei áður mæst í landsleik, hvorki í A-landsliðum né yngri landsliðum. Í Svartfjallalandi búa aðeins um 650.000 manns en árangur karlalandsliðsins í fótbolta hefur vakið athygli. Liðið endaði í 2. sæti í sínum riðli á eftir Englandi í undankeppni Evrópumótsins. Tékkar höfðu betur í umspili gegn Svartfellingum um laust sæti í úrslitum EM sem fram fer í sumar í Póllandi og Úkraínu. „Ég vonast til þess að við náum að leika vel og það er mikilvægast að landa sigri," sagði Lars Lagerbäck í gær við íþróttadeild 365 þegar hann var spurður að því hvaða væntingar hann hefði fyrir leikinn í dag. „Það er líka mikilvægt fyrir mig að fá að umgangast leikmennina á æfingum og fá að kynnast þeim betur. Ég hafði bara hitt um 1/3 af leikmannahópnum áður en við komum til Svartfjallalands," sagði Lars en hann er með alveg nýtt lið í höndunum frá því í leiknum gegn Japan. Þar fékk Ísland á sig mark eftir aðeins 90 sekúndur. Landsliðsþjálfarinn hefur lagt mikla áherslu á að liðið þurfi að fækka mistökunum sem gerð eru í varnarleiknum. „Við þurfum að byrja leikinn gegn Svartfjallalandi betur en við gerðum gegn Japan. Það er eitt af lykilatriðunum hjá okkur. Á móti Japan lékum við ekki vel fyrstu 25 mínúturnar en eftir það fóru hlutirnir að lagast. Að mínu mati vorum við á sama plani og Japan og náðum að skapa okkur færi. Við fengum á okkur tvö mjög ódýr mörk gegn Japan og það má ekki gerast þegar leikið er gegn liðum í þessum styrkleika." Eins og gengur og gerist eru margir leikmenn enn að jafna sig eftir átökin með sínum félagsliðum um síðastliðna helgi og þar kemur nafn Arons Einars Gunnarssonar, leikmanns Cardiff, fyrst upp hjá landsliðsþjálfaranum. Aron lék í 120 mínútur í framlengdum úrslitaleik enska deildabikarsins á Wembley síðasta sunnudag þar sem Liverpool hafði betur eftir vítaspyrnukeppni. „Það eru flestir leikmenn klárir í leikinn. Aron hefur ekki æft frá hann lék í 120 mínútur á Wembley. Það eru nokkrir sem eru þreyttir eftir leiki helgarinnar. Það á ekki að vera vandamál fyrir þá að spila gegn Svartfjallalandi. Ég hef trú á því að þeir geti allir lagt eitthvað af mörkum. Það er frábært að fá þessa tvo leiki, ekki síst fyrir mig. Ég fæ tækifæri til þess að kynnast leikmönnum liðsins. Það má orða það þannig að með þessum leikjum séum við að taka fyrstu skrefin." Eigum við möguleika á að vinna Svartfjallaland? „Já, ég hef trú því," sagði Lars Lagerbäck.
Fótbolti Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Golf Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Fótbolti Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Dorgu þurfti að fara meiddur af velli í sigri Danmerkur Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Bayern bjargaði andlitinu gegn neðri deildar liði Íslensku landsliðskonurnar allt í öllu í sigri Inter Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Þórir Jóhann kallaður inn í landsliðið Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk Dramatískur sigur og lið Sveindísar á mikilli siglingu Albert ekki meira með íslenska landsliðinu „Þetta er þorpið manns“ Myndaveisla: Ísland gerði svekkjandi jafntefli við Eistland Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael „Við eigum að vinna þessa leiki“ Lúxemborg á toppi íslenska riðilsins Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig „Úrslitin eru vonbrigði og leikurinn vonbrigði“ „Það erfiðasta í fótbolta er að skora mörk“ „Láta kné fylgja kviði og keyra dálítið á þá“ Sjáðu mörk úr leik Íslands og Eistlands ásamt vítavörslu Hákons Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Byrjunarlið Íslands gegn Eistlandi: Stefán Teitur og Daníel í hjartanu - Orri fremstur Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Sjá meira